Bíó og sjónvarp

Darri Ingólfs laminn í klessu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikarinn Darri Ingólfsson leikur Hannes í kvikmyndinni Borgríki 2: Blóð hraustra manna sem frumsýnd er á föstudaginn næsta. 

Meðfylgjandi er sena úr myndinni þar sem Hannes er laminn sundur og saman inní gám. Í senunni sést leikarinn Hilmir Snær Guðnason líka en hann leikur Ívar, yfirmann sérsveitarinnar, sem er harður nagli í húð og hár.

Borgríki 2 segir sögu Hannesar en hann er metnaðarfullur lögreglumaður sem lendir á hálum ís þegar hann hefur rannsókn á yfirmanni fíkniefnadeildar lögreglunnar.

Með önnur hlutverk í myndinni fara Ágústa Eva Erlendsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Zlatko Krickic og Sigurður Sigurjónsson.

Hannes er metnaðarfullur.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×