Fótbolti

Gylfi og Emil spiluðu | Helstu úrslit gærdagsins

Anton Ingi Leifsson skrifar
Gylfi í leik með Swansea á sínum tíma.
Gylfi í leik með Swansea á sínum tíma. Vísir/Getty
Flest lið í Evrópu eru þessa daganna í sínum lokaundirbúning fyrir komandi átök í sínum deildum og eru að spila sína síðustu leiki áður en deildirnar hefjast í heimalöndunum.

Gylfi Þór Sigurðsson spilaði allan leikinn hjá Swansea sem lá 0-3 gegn Villareal. Annað spænskt lið, Barcelona, pakkaði saman HJK frá Finnlandi, 0-6.

Emil Hallfreðsson var í liði Hellas Verona sem lá nokkuð óvænt gegn nýliðunum í ensku úrvalsdeildinni Burnley, en lítið er þó að marka æfingarleiki.

Hér að neðan má sjá helstu úrslit gærdagsins.

HJK 0-6 Barcelona

Paderborn 3-1 Everton

Swansea 0-3 Villareal

West Ham 3-2 Sampdoria

Burnley 3-1 Hellas Verona

QPR 0-1 PAOK

Leicester 1-0 Werder Bremen

WBA 1-3 Porto

Southampton 0-1 Bayern Leverkusen

Tottenham 2-1 Schalke 04




Fleiri fréttir

Sjá meira


×