Innlent

Hanna Birna í Sprengisandi: Hvaða hag ætti ég að hafa af þessu máli?

Bjarki Ármannsson skrifar
„Ég get ekki bara hent fólki út úr ráðuneytinu til að létta á mér pólitísku álagi,“ segir Hanna Birna.
„Ég get ekki bara hent fólki út úr ráðuneytinu til að létta á mér pólitísku álagi,“ segir Hanna Birna.
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra ítrekar það að hún hafi ekkert brotið af sér í tengslum við lekamálið svokallaða. Hún segist ekki hafa nokkura hugmynd um hver lak upplýsingum um hælisleitandann Tony Omos til fjölmiðla á sínum tíma og að hún hafi haft engan hag af því.

Þetta og meira kom fram í viðtali við Sigurjón M. Egilsson í þættinum Sprengisandi nú í morgun. Fyrr hafði Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, sagt í þættinum að Alþingi ætti erfitt með að treysta ráðherranum. Hún segir aftur á móti að moldviðri megi ekki skapast í hvert sinn sem almenningur nýtir sér þann rétt að kæra ráðuneytið.

„Í hvers lags réttarríki búum við þá?“ spyr Hanna Birna. „Hvað erum við þá að segja um réttinn til að kæra ráðuneytið?“

Sigurjón spyr hana um símanotkun annars aðstoðarmanns Hönnu Birnu, sem átti símtöl við blaðamenn hjá 365 miðlum og mbl.is áður en þessir miðlar birtu fréttir sem byggðu á því skjali sem fór úr ráðuneytinu. Hanna Birna segir ekkert óeðlilegt við það.

„Það er alvanalegt,“ segir hún. „Við erum í samskiptum við fjölmiðla allan daginn. Ráðuneytið mitt hefur fimmtíu málaflokka undir. Rannsóknin tengist ekkert því.“

Hún segir jafnframt að allir starfsmenn ráðuneytisins, þar á meðal aðstoðarmenn hennar, neiti því að hafa lekið upplýsingunum úr húsi.

„Ég get ekki bara hent fólki út úr ráðuneytinu til að létta á mér pólitísku álagi,“ segir hún. „Rannsókn virðist leiða í ljós að það hafi verið samtöl við ritstjóra. Ég get ekki sagt, þú varst að brjóta lög með því að tala við einhvern einstakling á einhverjum tíma. Mínir aðstoðarmenn eru einfaldlega í þeirri stöðu að tala stöðugt við fjölmiðlamenn. Út af allt öðrum málum.“

Hefur engan hag af málinu

Upplýsingarnar sem lekamálið snýst um snúa að hælisleitandanum Tony Omos. Hanna Birna segist ekki hafa haft neina aðkomu að máli hans í ráðuneytinu og ekki vita „nokkurn skapaðan hlut“ um manninn sjálfan.

„Af því að menn eru að reyna að tengja þetta við mig, hvaða hag ætti ég að hafa af þessu máli? Áttum okkur á því að þessi einstaklingur sem um ræðir, það var búið að dæma hann úr landinu í tvígang. Hann var eftirlýstur af lögreglu á þessum tímapunkti, það voru mótmæli fyrir utan ráðuneytið og menn hafa jafnvel gert því skóna að það hafi verið eitthvað mikið mál fyrir mig. Það líður varla sú vika í ráðuneytinu að ég taki ekki við mótmælaskjölum út af innflytjendum.

Það finnst mér ekkert mál. Að ég hafi átt að setja í gang einhverja aðgerð til þess að koma í veg fyrir það að nokkrir tugir einstaklinga söfnuðust saman fyrir framan ráðuneytið, hvernig í ósköpunum átti ég að hafa hag af nokkru sem tengist þessum einstaklingi.“

Hún segir að ef það kemur í ljós að einhver í ráðuneyti hennar hafi sent gagnið frá sér, hafi sá hinn sami algjörlega brotið trúnað gagnvart henni.

„Vegna þess að ég er ekki upplýst um það. Ég get ekki sagt það sannara, ég er ekki upplýst um það.“

Hlusta má á fyrri hluta viðtalsins við Hönnu Birnu í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir

Píratar vilja fund um lekamálið

Þingmaður Pírata hefur óskað eftir því að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd leiti svara við því hvort ráðherra hafi haft óeðlileg afskipti af störfum lögreglunnar.

Hver er starfsmaður B?

Þingmenn stjórnarandstöðunnar gengu hart að innanríkisráðherra og kröfðust svara.

Íhuga að leggja fram vantrauststillögu á Hönnu Birnu

Þingmenn stjórnarandstöðunnar íhuga að leggja fram vantrauststillögu á Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra þegar þing kemur saman í haust. Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir svörum frá ráðherra varðandi meint afskipti hennar af rannsókn lögreglu á lekamálinu.

Þórey sögð með réttarstöðu grunaðs manns

Þórey Vilhjálmsdóttir, aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, er sögð vera sú sem lak umdeildum minnisblaði um hælisleitandann Tony Omos.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×