Hver er starfsmaður B? Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 18. júní 2014 15:51 vísir/samsett/daníel
Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, krafðist svara innanríkisráðherra á þingfundi sem hófst á Alþingi klukkan þrjú í dag vegna lekamálsins svokallaða. Hún sagði Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, innanríkisráðherra, skulda þinginu svör vegna málsins og tók Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar undir með Valgerði. „Er ráðherrann, eða pólitískir aðstoðarmenn ráðherrans, starfsmaður B?“ sagði Árni Páll og sagði Hönnu Birnu bera pólitíska ábyrgð gagnvart Alþingi að svara þessari fyrirspurn skýrt og greinilega. Í dómi Hæstaréttar sem féll á mánudag hefur lögregla rökstuddan grun um að starfsmaður innanríkisráðuneytisins, sem kallaður er starfsmaður B, hafi lekið minnisblaði um hælisleitandann Tony Omos í fjölmiðla.Árni Páll Árnason.vísir/gva„Ég held að ráðherra verði að svara hvort hann geti staðfest að hvorki hún, né pólitískir starfsmenn hennar séu einn af þessum B sem getið er um í úrskurði Hæstaréttar. Það er að segja að það hafi ekki verið embættismenn sem hafa látið þetta frá sér fara,“ sagði Valgerður Bjarnadóttir. Lítið var um svör þegar innanríkisráðherra, Hanna Birna Kristjánsdóttir, steig í pontu og sagðist hún ekki vita hvernig málið væri tilkomið. Því gæti hún ekki upplýst þingið um málið. Þá hvatti hún Valgerði til að kynna sér málið betur. „Nú hlær þingmaðurinn. Það getur verið að henni finnist þetta fyndið en rannsókn málsins er ekki lokið,“ sagði Hanna Birna og sagði að starfsmenn ráðuneytisins í stöðugum samskiptum við fjölmiðla.Valgerður Bjarnadóttir.vísir/gva„Ég ítreka það sem ég hef áður sagt. Ég veit ekki hvernig þetta mál er til komið og ég veit ekki hversu oft ég á að segja það,“ sagði Hanna Birna. Minnisblaðið sem um ræðir var tekið saman af lögfræðingi í ráðuneytinu 19. nóvember 2013, en fréttir um málið birtust að morgni dags 20. nóvember. Minnisblaðið var tekið saman að beiðni skrifstofustjóra vegna mótmæla sem halda átti fyrir utan ráðuneytið í kjölfar umfjöllunar um afgreiðslu þess á máli hælisleitandans Tony Omos. En vísa átti honum úr landi. Minnisblaðið var vistað á opnu drifi innanríkisráðuneytisins en þeir sem höfðu vitneskju um það og hvað á því stóð voru skrifstofustjóri, lögfræðingurinn sem tók það saman, ráðuneytisstjóri, ráðherra, tveir aðstoðarmenn auk tveggja lögfræðinga sem lásu það yfir. Rannsókn lögreglu benti til þess að ólíklegt væri að það hefði verið sent frá ráðuneytinu með tölvupósti.Í tilkynningu frá innanríkisráðuneytinu segir að persónuleg samtöl einstakra starfsmanna ráðuneytisins séu sett í sérkennilegt samhengi. Þar segir að stór hluti af daglegu starfi starfsmanna ráðuneytisins séu samskipti við fjölmiðla. Þá segir jafnframt að hvorki ráðherra né aðrir starfsmenn geti ekki tjáð sig um efnisatriði málsins fyrr en rannsókn málsins er lokið.
Lekamálið Tengdar fréttir Krefjast þess að Hanna Birna segi af sér Ungir jafnaðarmenn samþykktu í dag ályktun af miðstjórn um að Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, eigi að segja af sér ráðherraembætti. 5. maí 2014 15:43 Þarf ekki að gefa upp heimildarmann sinn í lekamálinu Hæstiréttur hefur kveðið upp dóm sinn varðandi lekamálið. 18. júní 2014 12:53 Einkamál útlendinga birt án skýrra heimilda Innanríkisráðuneytið hefur hafið birtingu á úrskurðum sínum um málefni útlendinga. Ekki er skýr lagaheimild fyrir birtingunni og viðkvæmar persónuupplýsingar birtast þrátt fyrir að nafnleyndar sé gætt. Persónuvernd vill að vandað sé til verka. 31. mars 2014 13:06 Máli Tony Omos enn frestað Eftir stutta fyrirtöku var máli hans frestað til 7.apríl næstkomandi. Taldi lögmaður hans að nauðsynlegt væri að bíða eftir niðurstöðum úr rannsókn lögreglu til frekari gagnaöflunar. 4. mars 2014 15:01 Tony Omos stefnir íslenska ríkinu Fyrirtöku í máli hælisleitandans Tony Omos um ógildingu á ákvörðun Útlendingastofnunar og úrskurði innanríkisráðuneytisins um synjun á hæli hér á landi var frestað í morgun. 18. febrúar 2014 11:35 Lekamálið ljótur pólitiskur leikur að mati Hönnu Birnu Hart var sótt að innanríkisráðherra á þinginu nú rétt í þessu vegna lekamálsins svokallaða. Hanna Birna Kristjánsdóttir ætlar að tjá sig um það síðar en gaf í skyn að það snérist um aðför að sér. 6. maí 2014 14:21 „Ráðherrann hefur ávítað okkur sem höfum spurst fyrir um þetta mál“ Valgerður Bjarnadóttir þingmaður Samfylkingarinnar segir svör innanríkisráðherra í tengslum við lekamálið skrítin og síðbúin og undrar sig á því hvers vegna Hanna Birna neitar að tjá sig um málið. 19. maí 2014 10:30 Mótmæli vegna lekamálsins Boðað hefur verið til mótmæla fyrir framan innanríkisráðuneytið í hádeginu á morgun. 11. febrúar 2014 13:36 Blaðamannafélagið fordæmir aðför lögregluyfirvalda Tilraunir lögregluyfirvalda til þess að draga blaðamenn fyrir dómara lýsa mikilli vanþekkingu á trúnaðarsambandi blaðamanna og heimildarmanna þeirra. 12. maí 2014 14:40 Ríkissaksóknari vill svör frá innanríkisráðuneytinu Ríkissaksóknari hefur óskað eftir upplýsingum úr innanríkisráðuneytinu vegna kæru lögmanns Tony Omos sem sakar innanríkisráðuneytið um að hafa dreift gögnum um sig. 11. janúar 2014 16:45 Mun ekki tjá sig efnislega um lekamálið fyrr en niðurstaða liggur fyrir Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, hefur ítrekað beðist undan því að mæta í viðtal í Kastljósið til að ræða trúnaðarbrest sem kom upp í innanríkisráðuneytinu. Hún hafði áður samþykkt að veita Kastljósi viðtal í vikunni en hefur hætt við það í bili. 28. janúar 2014 21:15 Mest lesið Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Innlent Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Erlent Segist saklaus Innlent Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Innlent Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Innlent Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Innlent Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Erlent Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Innlent Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Innlent Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Innlent Fleiri fréttir Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Norðanhríð fyrir vestan og Ísland í máli gegn Ísrael Þau eru á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Óvissustig í Súðavíkurhlíð „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Besta fimleikafólk Danmerkur gefur góð ráð og sýnir á Íslandi „Allt lýðræðið þurrkað út“ Lilja lagði til breytingu á formennsku þingflokks Nýr listi Samfylkingarinnar í Árborg kynntur Segist saklaus Djúpstæður ágreiningur og íþróttasalur umbreytist í tónleikahöll Bjargað af þakinu eftir að bíllinn fór í kaf Úthlutaði 91 milljón til félagasamtaka Þungar refsingar undir í máli sem fer enn einn hringinn Sakar minnihluta um ódýra pólitík í aðdraganda kosninga „Þetta þýðir einfaldlega lengri biðtími“ Rúv er óháð hagsmunum stjórnmála og einkaaðila Þarf að greiða þriggja milljóna málskostnað parsins Stefán Vagn leiðir þingflokk Framsóknarflokksins Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Skólameistarinn fær ekki að leiða ráðherra til vitnis Refsingar Shamsudin-bræðra og Samúels þyngdar Sjá meira
Krefjast þess að Hanna Birna segi af sér Ungir jafnaðarmenn samþykktu í dag ályktun af miðstjórn um að Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, eigi að segja af sér ráðherraembætti. 5. maí 2014 15:43
Þarf ekki að gefa upp heimildarmann sinn í lekamálinu Hæstiréttur hefur kveðið upp dóm sinn varðandi lekamálið. 18. júní 2014 12:53
Einkamál útlendinga birt án skýrra heimilda Innanríkisráðuneytið hefur hafið birtingu á úrskurðum sínum um málefni útlendinga. Ekki er skýr lagaheimild fyrir birtingunni og viðkvæmar persónuupplýsingar birtast þrátt fyrir að nafnleyndar sé gætt. Persónuvernd vill að vandað sé til verka. 31. mars 2014 13:06
Máli Tony Omos enn frestað Eftir stutta fyrirtöku var máli hans frestað til 7.apríl næstkomandi. Taldi lögmaður hans að nauðsynlegt væri að bíða eftir niðurstöðum úr rannsókn lögreglu til frekari gagnaöflunar. 4. mars 2014 15:01
Tony Omos stefnir íslenska ríkinu Fyrirtöku í máli hælisleitandans Tony Omos um ógildingu á ákvörðun Útlendingastofnunar og úrskurði innanríkisráðuneytisins um synjun á hæli hér á landi var frestað í morgun. 18. febrúar 2014 11:35
Lekamálið ljótur pólitiskur leikur að mati Hönnu Birnu Hart var sótt að innanríkisráðherra á þinginu nú rétt í þessu vegna lekamálsins svokallaða. Hanna Birna Kristjánsdóttir ætlar að tjá sig um það síðar en gaf í skyn að það snérist um aðför að sér. 6. maí 2014 14:21
„Ráðherrann hefur ávítað okkur sem höfum spurst fyrir um þetta mál“ Valgerður Bjarnadóttir þingmaður Samfylkingarinnar segir svör innanríkisráðherra í tengslum við lekamálið skrítin og síðbúin og undrar sig á því hvers vegna Hanna Birna neitar að tjá sig um málið. 19. maí 2014 10:30
Mótmæli vegna lekamálsins Boðað hefur verið til mótmæla fyrir framan innanríkisráðuneytið í hádeginu á morgun. 11. febrúar 2014 13:36
Blaðamannafélagið fordæmir aðför lögregluyfirvalda Tilraunir lögregluyfirvalda til þess að draga blaðamenn fyrir dómara lýsa mikilli vanþekkingu á trúnaðarsambandi blaðamanna og heimildarmanna þeirra. 12. maí 2014 14:40
Ríkissaksóknari vill svör frá innanríkisráðuneytinu Ríkissaksóknari hefur óskað eftir upplýsingum úr innanríkisráðuneytinu vegna kæru lögmanns Tony Omos sem sakar innanríkisráðuneytið um að hafa dreift gögnum um sig. 11. janúar 2014 16:45
Mun ekki tjá sig efnislega um lekamálið fyrr en niðurstaða liggur fyrir Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, hefur ítrekað beðist undan því að mæta í viðtal í Kastljósið til að ræða trúnaðarbrest sem kom upp í innanríkisráðuneytinu. Hún hafði áður samþykkt að veita Kastljósi viðtal í vikunni en hefur hætt við það í bili. 28. janúar 2014 21:15