Celtic kemst bakdyramegin aftur inn í Meistaradeildina Kristinn Páll Teitsson skrifar 8. ágúst 2014 09:13 Vísir/Getty
Þrátt fyrir að hafa tapað 1-6 í einvígi sínu gegn Legia Warsaw staðfesti UEFA í dag að Celtic hefði komist bakdyramegin inn í fjórðu umferð undankeppni Meistaradeildarinnar eftir að í ljós kom að Legia Warsaw tefldi fram ólöglegum leikmanni í leik liðanna. Celtic sló KR út nokkuð sannfærandi í annarri umferð en lenti í töluverðum vandræðum með pólsku meistarana í þriðju umferð. Legia Warsaw vann fyrri leik liðanna sannfærandi 4-1 á heimavelli og fylgdi því eftir með 2-0 sigri í Glasgow á miðvikudaginn. Það voru hinsvegar efasemdir um lögmæti Bartosz Bereszynski, leikmanns Legia Warsaw sem spilaði síðustu tvær mínútur seinni leiksins. Hann var dæmdur í þriggja leikja bann á síðasta tímabili eftir að hafa fengið rautt spjald í leik liðsins gegn Apollon Limassol. Hefur UEFA staðfest að hann hafi verið ólöglegur í leik liðanna á miðvikudaginn og Celtic því dæmdur 3-0 sigur og kemst áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Celtic kemst inn í Evrópukeppni bakdyramegin en fyrir nokkrum árum sló svissneska liðið Sion skosku meistarana út en í ljós kom að Sion tefldi fram ólöglegum leikmönnum eftir að hafa verið í félagsskiptabanni.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira