Fótbolti

Ekkert íslenskt félag hefur unnið stærri sigur í fyrsta Evrópuleik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vísir/Valli
Stjarnan varð í gærkvöldi aðeins fjórða íslenska félagið til að vinna fyrsta Evrópuleik sinn þegar Stjörnumenn unnu 4-0 stórsigur á velska liðinu Bangor City á Samsung-vellinum í Garðabæ.

Aðeins þrjú önnur íslensk félög höfðu náð að fagna sigri í sínum fyrsta Evrópuleik en það eru KA (1990), Grindavík (2001) og Fylkir (2001). Þau unnu hinsvegar öll nauma eins marks sigra og er sigur Stjörnunnar í kvöld því stærsti sigur íslensks karlaliðs í fyrsta Evrópuleiknum.

Hér fyrir neðan má sjá hvernig hefur farið í fyrsta Evrópuleiknum hjá íslenskum félögum í gegnum tíðina en Stjarnan varð í kvöld sextánda íslenska félagið til þess að spila Evrópuleik.



Fyrsti Evrópuleikur íslenskra félaga:

KR

0-5 tap á móti Liverpool 17. ágúst 1964

(Evrópukeppni meistaraliða)

Keflavík

1-4 tap á móti Ferencváros 29. ágúst 1965

(Evrópukeppni meistaraliða)

Valur

1-1 jafntefli á móti Standard Liege 21. ágúst 1966

(Evrópukeppni bikarhafa)

ÍBV

0-4 tap á móti Levski Sofia 29. ágúst 1969

(Evrópukeppni bikarhafa)

ÍA

0-6 tap á móti Sparta Rotterdam 23. september 1970

(Borgarkeppni Evrópu)

ÍBA

1-7 tap á móti FC Zürich 15. september 1970

(Evrópukeppni bikarhafa)

Fram

0-3 tap á móti Hibernians FC 27. ágúst 1971

(Evrópukeppni bikarhafa)

Víkingur

0-2 tap á móti Legia Varsjá 12. september 1972

(Evrópukeppni bikarhafa)

Leiftur

1-2 tap á móti Hamburger SV 21. júní 1997

(Intertoto-keppnin)

FH

1-3 tap á móti Dundee United 18. september 1990

(UEFA-bikarinn)

KA

1-0 sigur á móti CSKA Sofia 19. september 1990

(Evrópukeppni meistaraliða)

Grindavík

1-0 sigur á móti Vilash 17. júní 2001

(Interoto-keppnin)

Fylkir

2-1 sigur á móti Pogon Szczecin 9. ágúst 2001

(UEFA-bikarinn)

Breiðablik

0-1 tap á móti Motherwell 15. júlí 2010

(Evrópudeild UEFA)

Þór

0-0 jafntefli á móti Bohemians 5. júlí 2012

(Evrópudeild UEFA)

Stjarnan

4-0 sigur á Bangor City 3. júlí 2014

(Evrópudeild UEFA)






Tengdar fréttir

FH-ingar skoruðu þrjú mörk í lokin - sjáið mörkin

FH-ingar þurftu að bíða lengi eftir fyrsta marki sínu en þau komu síðan á færibandi á lokakaflanum í 3-0 sigri FH á Glenavon í fyrri leik liðanna í í 1. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar.

Davíð Þór: Það var bara Höddi Magg sem klúðraði þessu fyrir 19 árum

"Við undirbjuggum okkur vel fyrir leikinn og við vissum af því að þeir væru líklegir til að þreytast. Þeir eru bara búnir að æfa í þrjár vikur og þeir gáfu aðeins eftir þegar líða tók á leikinn,“ sagði Davíð Þór Viðarsson, leikmaður FH, eftir 3-0 á norður-írska liðinu Glenovan í 1. umferð í forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld.

Framarar féllu á klaufalegu marki - myndband

Framarar töpuðu í kvöld 0-1 fyrir eistneska liðinu Kalju Nömme í fyrstu umferð forkeppni Evrópudeildarinnar en sigurmark gestanna var af klaufalegri gerðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×