Ellefu mörk úr stórleikjum FH og KR | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 12. maí 2014 13:00 Freyr Bjarnason flýgur á eftir Guðjóni Baldvinssyni í Frostaskjóli. Vísir/Anton
KR og FH mætast í kvöld í þriðju umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu. Leikir þessara liða undanfarin ár hafa verið frábær auglýsing fyrir íslenska knattspyrnu og hafa þeir stundum verið kallaðir hinir íslensku El Clásico-leikir. Leikurinn í kvöld er sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport líkt og leikur Fram og Þórs sem hefst á gervigrasinu í Laugardal klukkan klukkan 18.00. Að loknum tvíhöfðanum verða Pepsi-mörkin svo í beinni útsendingu þar sem ÞorvaldurÖrlygsson stígur sín fyrstu skref í markaþættinum vinsæla og þá mætir HjörvarHafliðason til leiks í fyrsta skipti í sumar. KR hefur gengið vel með FH undanfarin tvö ár en liðið er búið að taka „tvennuna“ í rimmum liðanna í Pepsi-deildinni síðustu tvö tímabil. KR er sem sagt búið að vinna fjóra deildarleiki í röð en ekki er langt síðan KR gat ómögulega unnið FH. Eftir að FH vann nýkrýnda Íslandsmeistara KR, 7-0, í lokaumferð úrvalsdeildarinnar 2003 vann KR ekki deildarsigur á Hafnafjarðarliðinu í fimm ár. Í heildina vann FH tólf sigra á KR og gerði eitt jafntefli frá 2003-2009, þar af níu sigra í röð frá 2005-2009. KR-ingum tókst loksins að vinna bilbug á FH-grýlunni þegar liðin mættust í Kaplakrika í 16. umferð Pepsi-deildarinnar 2009. BjörgólfurTakefusa, sem spilar líklega með sjötta Reykjavíkurliðinu, Fram, í kvöld, kom KR þá yfir á þriðju mínútu en AtliGuðnason kom FH yfir með tveimur mörkum áður en tíu mínútur voru liðnar.Gunnar Örn Jónsson tók þá til sinna ráða og skoraði tvö mörk áður en smalinn úr Mývatnssveitinni, BaldurSigurðsson, innsiglaði langþráðan sigur KR á FH, 4-2. Strax í næsta deildarleik, nánar til tekið sjöttu umferð Pepsi-deildarinnar 2010, svöruðu FH-ingar með sigri í öðrum frábærum fótboltaleik í Kaplakrika. MatthíasVilhjálmsson kom FH þar á bragðið á 51. mínútu, 1-0, eftir laglega sendingu AtlaViðarsBjörnssonar.Óskar Örn Hauksson jafnaði metin með marki úr aukaspyrnu áður en TommyNielsen kom FH í 2-1 með marki úr víti. Vítið var dæmt á norska markvörðinn Lars Ivar Moldskred sem átti misjöfnu gengi að fagna þetta sumarið. Bakvörðurinn Hjörtur Logi Valgarðsson bætti svo við þriðja marki FH áður en Björgólfur Takefusa minnkaði muninn, 3-2, eftir langan sendingu Skúla Jóns Friðgeirssonar fram völlinn. Skúli leikur í dag sem atvinnumaður með Gefle í Svíþjóð. FH og KR hafa mæst 20 sinnum á síðustu tíu tímabilum í úrvalsdeildinni. FH hefur unnið þrettán leiki, KR sex og aðeins einu sinni hafa þau skilið jöfn. Síðan KR tókst að vinna FH aftur 2009 hafa liðin mæst átta sinnum. FH hefur unnið þrjá leiki síðan þá en KR fimm, þar af þá fjóra síðustu. Síðast þegar liðin mættust í mótsleik í Laugardalnum vann FH 4-0 sigur í bikaúrslitaleik.KR vinnur FH 4-2 í Krikanum 2009: FH vinnur KR 3-2 í Krikanum 2010:
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Sjá meira