„Það mesta sem við höfum séð síðan 1995“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. maí 2014 13:39 Hrafnseyrarheiði í Skipadal og Guðmundur Björgvinsson. Mynd/Vegagerðin
Snjóhæðin á Hrafnseyrarheiði á Vestfjörðum í vetur hefur ekki verið meiri í tæpa tvo áratugi. Svo segir Guðmundur Björgvinsson, yfirverkstjóri hjá Vegagerðinni á Ísafirði, í samtali við Vísi. „Þetta er það mesta sem við höfum séð síðan 1995. Þetta eru glögg ummerki um það hversu rík norðvestanáttin var við Vestfjarðarkjálkann í vetur. Það var bara ein átt,“ segir Guðmundur. Hann minnir á að Skipadalur, þar sem myndin að ofan er tekin, sé skipskrokkslaga dalur og vegurinn í 520-530 metra hæð yfir sjávarmáli. „Þetta er eins og þú færir að glápa upp undir brún á Esjunni og pæla hvernig væri ef þar væri vegur,“ segir Guðmundur og skýrir málið út fyrir borgarbarninu á hinum enda línunnar. Vegurinn hafi verið lokaður frá ársbyrjun og verið opnaður rétt fyrir páska. „Svo gerði páskahret og varð aftur ófært í nokkra daga,“ segir Guðmundur sem vonast til þess að vetrinum sé nú lokið. Þrátt fyrir snjómagnið telur hann allar líkur á að snjó taki upp á heiðinni yfir sumarið. „Þetta liggur svo vel við sól. Það er sjaldgæt að það verði snjór eftir.“Göng munu breyta miklu Ríkisstjórnin hefur samþykkt nýja samgönguáætlun sem gerir ráð fyrir að Dýrafjarðargöng verði boðin út árið 2016. Þau verða á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar og leysa af hólmi veginn um Hrafnseyrarheiði sem lokast árlega í nokkra mánuði yfir vetrartímann og klýfur Vestfirði í tvennt. Annars vegar sunnanverða Vestfirði, Vestfjarðarbyggð, með þétttbýliskjarnana Patreksfjröð, Tálknafjörð og Bíldudal og hins vegar norðanverða Vestfirði með Ísafjörð, Bolungarvík og fleiri kjarna. „Það eru menn á Ísafirði sem keyra á áttunda hundrað kílómetra í vinnu á Tálknafirði,“ segir Guðmundur. Með tilkomu ganga verði vegalengdin innan við 200 kílómetrar. Sum fiskeldisfyrirtæki fyrir vestan séu með seyði í Tálknafirði en kvíarnar í Dýrafirði og Önundarfirði. „Það mun muna gríðarlega um þetta,“ bætir Guðmundur við. Þá geti fólk sótt sér verslun og þjónustu á Ísafjörð á einum degi í stað þess að taka ferjuna yfir í Stykkishólm eða keyra í Borgarnes. Hluti sem nú taki heilan dag eða fleiri verði hægt að gera á nokkrum klukkutímum. Þá muni göngin hjálpa ferðamannaiðnaðinum á Vestfjörðum, enda margir ferðamenn sem koma með skemmtiferðarskipum sem leggi leið sína að fossinum Dynjanda. „Í dag tekur það einn og hálfan tíma en eftir göng tæki það um 40 mínútur.“ Hér að neðan má sjá myndband sem BS-Tours birti af snjómokstri á Hrafnseyrarheiði og Sandsheiði í apríl.
Tengdar fréttir Bílferja yfir Arnarfjörð tengi Vestfirði saman Ferja yfir Arnarfjörð, sem sigldi nokkrum sinnum á dag milli Hrafnseyrar og Bíldudals, er skjótasta lausnin til að tengja saman atvinnusvæði norður- og suðurhluta Vestfjarða. 30. júní 2013 18:45 Flýgur til Reykjavíkur til að komast milli byggða á Vestfjörðum Hvernig ætli Reykvíkingum þætti það ef þeir kæmust ekki til Suðurlands nema aka fyrst norður til Blönduóss og þaðan suður yfir Kjöl? Þetta er sú staða sem uppi er á Vestfjörðum 17. mars 2014 22:31 Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira
Bílferja yfir Arnarfjörð tengi Vestfirði saman Ferja yfir Arnarfjörð, sem sigldi nokkrum sinnum á dag milli Hrafnseyrar og Bíldudals, er skjótasta lausnin til að tengja saman atvinnusvæði norður- og suðurhluta Vestfjarða. 30. júní 2013 18:45
Flýgur til Reykjavíkur til að komast milli byggða á Vestfjörðum Hvernig ætli Reykvíkingum þætti það ef þeir kæmust ekki til Suðurlands nema aka fyrst norður til Blönduóss og þaðan suður yfir Kjöl? Þetta er sú staða sem uppi er á Vestfjörðum 17. mars 2014 22:31