Innlent

Öll spjót beinast að Se & Hør

Birta Björnsdóttir skrifar
Forsaga málsins er sú að nýverið kom út skáldsaga eftir Ken B. Rasmussen, fyrrum blaðamann á Se & Hør, þar sem því er lýst hvernig ónefndur heimildamaður hjá greiðslukortaþjónustunni Nets hafi útvegað blaðamönnum upplýsingar um greiðslukortanotkun þekktra einstaklinga þar í landi.

Frásögnin var hermd upp á höfundinn, sem staðfesti að þessi vinnubrögð hefðu verið stunduð á blaðinu árin 2008 til 2012. Þetta var í lok apríl og síðan þá hefur um lítið annað verið fjallað í dönskum fjölmiðlum.

Blaðamenn, sem starfandi voru á Se & Hør á umræddu tímabili hafa verið sendir í leyfi og Henrik Qvortrup, fyrrverandi ritstjóra blaðsins, voru settir afarkostir í nýju starfi sínu sem sjónvarpsmaður hjá TV2, að segja sjálfviljugur upp störfum eða vera sagt upp. Hann valdi fyrri kostinn, en þvertekur fyrir það að hafa haft vitneskju um þessa upplýsingaöflun.

Meðal upplýsinga sem sendar voru til blaðsins eru greiðslukortafærslur Mary, krónprinsessu Danmerkur, um viðskipti hennar í flugstöð Leifs Eiríkssonar, eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði.

Í fyrradag stigu svo tveir fyrrum blaðamenn Se & Hør fram og fullyrtu að starfsmönnum Kastrup flugvallar og flugfélagsins SAS hefði einnig verið greitt fyrir upplýsingar um ferðalög fræga fólksins.

Fjölmargir þekktir einstaklingar, sem teknir hafa verið til umfjöllunnar í Se & Hør í gegnum tíðina, hafa nú lagt fram formlega ákæru til lögreglunnar gegn Aller Media, útgáfu félagi Se & Hør, vegna málsins. Þeirra á meðal leikararnir Casper Christensen, Iben Hjelje og Mads Mikkelsen.

Karen Hækkerup, dómsmálaráðherra Danmerkur, segir málið grafalvarlegt og þá hefur meirihlutinn í danska þinginu þrýst á ríkisstjórnina að herða viðurlög við meðferð á persónuupplýsingum í Danmörku.


Tengdar fréttir

Láku upplýsingum um ferðahagi danska kóngafólksins á Íslandi

Uppljóstrarinn Edward Snowden birti opið bréf í kjölfar persónunjósna sem hafa átt sér stað í Danmörku síðastliðin fjögur ár, í það minnsta. Hann segir það engu máli skipta hvar aðili sé staddur, alltaf sé hætta á njósnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×