Könnun í Reykjanesbæ gerð upp á nýtt 8. maí 2014 13:44
Starfsmaður 365 miðla varð í gærkvöldi uppvís að því að brjóta verklagsreglur við gerð könnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 á fylgi flokka í Reykjanesbæ. Starfsmaðurinn talaði inn í talhólf að minnsta kosti eins einstaklings sem lent hafði í úrtaki könnunarinnar og lét eins og hann svaraði fyrir hann. Málið er litið mjög alvarlegum augum innan 365, að sögn Ólafs Þ. Stephensen, ritstjóra 365 frétta. Starfsmanninum hefur verið sagt upp störfum vegna alvarlegs trúnaðarbrests og hefur fréttastofa 365 miðla ákveðið að hætta gerð könnunarinnar og eyða þeim svörum sem þegar hafði verið aflað. „Trúverðugleiki kannana okkar skiptir mjög miklu máli fyrir fréttastofuna. Það er enginn annar kostur í stöðunni en að bregðast hart við þegar kemur í ljós að verklagsreglum við gerð skoðanakannana er ekki fylgt,“ segir Ólafur. „Kannanir Fréttablaðsins og Stöðvar 2 hafa reynst nákvæmar, farið nálægt kosningaúrslitum og verið í samræmi við niðurstöður kannana annarra viðurkenndra könnunarfyrirtækja. Við viljum tryggja áframhaldandi gott orðspor þessara kannana.“ Í kjölfar þessa atviks verður farið rækilega yfir allt verklag við gerð skoðanakannana 365 miðla. Skoðanakönnunin í Reykjanesbæ verður gerð á nýjan leik og niðurstöður birtar eftir nokkra daga.
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Fleiri fréttir Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Sjá meira