Ætla að þjóðfélagið verði af einum milljarði á hverjum degi Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 9. maí 2014 16:19 Rólegt var um að litast á Keflavíkurflugvelli í morgun eftir að verkfall íslenskra atvinnuflugmanna hófst.
Ætla má að þjóðfélagið verði af einum milljarði króna, fyrir hvern dag sem vinnustöðvun íslenskra atvinnuflugmanna stendur yfir og stærsta ferðasumar sögunnar er í hættu, að mati Samtaka atvinnulífsins. Þá er ekki tekið tillit til alvarlegra langtímaafleiðinga sem af kunna að hljótast. Verkfallsaðgerðir Félags íslenskra atvinnuflugmanna gegn Icelandair munu hafa áhrif á um 600 flug og 100 þúsund farþega félagsins þá níu daga sem tímabundin vinnustöðvun nær til á tímabilinu 9. maí til 3. júní. „Hver dagur veldur stórtjóni hvort sem litið er til flugfélagsins, ferðaþjónustunnar, útflutningsfyrirtækja eða orðspors landsins almennt,“ segir á vefsíðu SA. Á þessu tímabili sé hlutdeild Icelandair í flugi til og frá landinu 70 prósent auk þess sem flug til Bandaríkjanna muni nánast leggjast af. Röskun á samgöngum til og frá landinu verði mjög mikil. Samningar liggi fyrir hjá 98 prósent starfsfólks á almennum vinnumarkaði en þeir sem eftir eru taki einkum til flugstéttanna. Meirihluti starfsmanna Icelandair Group hefur þegar samið um laun í takti við almennu samningana en kröfur flugmanna séu úr öllum takti við þá.Ósættanlegt að lítill hópur raski stórkostlega samgöngum Markmiðið sé að koma á stöðugu verðlagi á Íslandi og auka kaupmátt fólks til lengri tíma. Það verði hins vegar ekki gert með því að hækka launakostnað fyrirtækja um tugi prósenta og tilheyrandi verðbólgu. Ósættanlegt sé að lítill hópur geti raskað stórkostlega lífsnauðsynlegum samgöngum við Ísland með miklum efnahagslegum skaða. Því sé mikilvægt að samkomulag náist í deilunni sem fyrst svo Íslendingar geti flogið til og frá landinu samkvæmt áætlunum. Og vaxandi ferðaþjónusta jafnframt tekið á móti erlendum ferðamönnum sem vilja kynna sér land og þjóð.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Erlent Vill breyta umdeildum gatnamótum Innlent „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Innlent Fleiri fréttir Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Sjá meira