Innlent

Skallaður í IKEA

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Verslun IKEA í Garðabæ.
Verslun IKEA í Garðabæ. Vísir/Aðsend
Kalla þurfti til lögreglu í IKEA í Garðabæ síðdegis í dag þegar karlmaður var skallaður í andlitið.

Atvikið átti sér stað á fimmta tímanum inni í versluninni en ástæður árásarinnar eru ókunnar. Hinn slasaði hlaut skurð yfir augabrún en árásarmaðurinn flúði af vettvangi. Lögreglu bar að garði skömmu síðar en ekki liggur fyrir hvort henni hafi tekist að hafa hendur í hári árásarmannsins.

Öryggisstjóri IKEA vildi ekkert láta hafa eftir sér þegar Vísir hafði samband við hann. Lögreglumaður á vakt vissi af útkalli liðsfélaga sinna í Garðabænum en hafði ekki frekari upplýsingar um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×