Kjaradeila eftir metár hjá Mary Poppins Snærós Sindradóttir skrifar 21. mars 2014 09:04 Úr uppfærslu Borgarleikhússins á Mary Poppins Mynd/aðsend
Hljóðfæraleikarar sem tóku þátt í uppfærslu Borgarleikhússins á Mary Poppins standa nú í málaferlum við leikhúsið vegna túlkunar á kjarasamningum Leikfélags Reykjavíkur og Félags íslenskra hljómlistarmanna, FÍH. Mary Poppins var umfangsmesta uppfærsla sem ráðist hefur verið í á Íslandi og sýnd samtals 135 sinnum. Ellefu hljóðfæraleikarar komu að hverri sýningu, þar af einn hljómsveitarstjóri. Kjarasamningur FÍH og Leikfélags Reykjavíkur kveður á um sérstakar greiðslur fyrir fullgilda hljóðfæraleikara annars vegar og leiðandi menn hins vegar. Ágreiningur Leikfélags Reykjavíkur og FÍH snýst um hvort hljóðfæraleikari teljist leiðandi maður ef hann spilar einn á hljóðfæri án þess að leiða hóp manna.Björn Árnason, formaður FÍHMynd/Arnþór BirkissonÞorsteinn S. Ásmundsson, framkvæmdastjóri Borgarleikhússins, segir að FÍH og leikhúsið hafi verið sammála um að fá niðurstöðu í málið fyrir dómstólum því ágreiningurinn komi öðru hvoru upp við uppfærslur leikhússins. „Þeir fara fram á að hlutirnir séu túlkaðir eins og þeir leggja til. Það kemur fram í útreikningum hvernig við lítum á samninginn. Þetta er svona eftir á túlkun hjá FÍH en þetta er ekkert stórmál. Við höfum litið svo á að leiðandi maður leiði einhvern hóp, okkur finnst það liggja í orðanna hljóðan. Okkur finnst skrýtið ef leiðandi maður leiðir bara sjálfan sig.“ FÍH miðar við þá skilgreiningu að allir hljómsveitarmeðlimir séu skilgreindir sem leiðandi menn ef hljómsveitin er skipuð færri en tólf meðlimum. Björn Árnason, formaður FÍH segir að hefð sé fyrir skilgreiningunni „Þessi skipting er alþjóðleg og ekki einhver lygi í kjarasamningum. Við höfum haft hana í okkar samningum frá 1984.“ Kjör hljóðfæraleikara við Þjóðleikhúsið miðast við skilgreiningu FÍH.Tvær og hálf milljón standa út af borðinuKröfur hljóðfæraleikaranna eru að allir, nema hljómsveitarstjóri, séu skilgreindir sem leiðandi menn. Ef hljóðfæraleikararnir hefðu verið skilgreindir sem leiðandi menn hefðu þeir haft nær 230 þúsund krónum hærri tekjur á tímabilinu. Sé miðað við þann æfingafjölda sem liggur fyrir hefðu þeir haft um 35 þúsund krónum hærri tekjur á æfingatímabilinu. Samanlagðar tekjur tónlistarmannanna tíu eru því rúmar 2,5 milljónir króna.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Fleiri fréttir Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Sjá meira