Íslenski boltinn

Árni á reynslu til Rosenborg

Árni Vilhjálmsson framlengdi samning sinn við Blika fyrir jól.
Árni Vilhjálmsson framlengdi samning sinn við Blika fyrir jól. Mynd/Vísir
Árni Vilhjálmsson, leikmaður Breiðabliks, er á leið til reynslu hjá norska stórliðinu Rosenborg frá Þrándheimi.

Þetta kemur fram á blikar.is en þar er sagt að norska liðið hafi fylgst með Árna í nokkurn tíma. Hann hafi nú fengið leyfi frá Blikum að æfa með liðinu.

Árni verður tvítugur á árinu og á að baki 80 leiki með meistaraflokki. Hann hittir Rosenborg-liðið á Spáni og æfir með því næstu daga.

Rosenborg er sigursælasta lið Noregs frá upphafi en það hefur unnið meistaratitilinn þar í landi 22 sinnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×