Íslenski boltinn

FH-ingar skelltu Fylkismönnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Stefán
FH hóf tímabilið í Lengjubikar karla með því að vinna Fylkismenn í Egilshöllinni í kvöld, 3-1.

Emil Pálsson, Sam Tilen og Ingimundur Níels Óskarsson komu FH-ingum í 3-0 forystu áður en Hákon Ingi Jónsson klóraði í bakkann fyrir Árbæinga undir lokin.

Sam Hewson, leikmaður FH, fékk reyndar að líta rauða spjaldið á 67. mínútu en það kom ekki að sök.

Fylkir var að leika sinn annan leik í keppninni en liðið hafði áður unnið 4-3 sigur á Fjölni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×