Haukur Páll skoraði tvö í sigri Vals | Létt hjá Víkingum gegn Selfossi Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. febrúar 2014 21:03 Haukur Páll skoraði tvö mörk gegn Ólsurum. Vísir/Valli
Valsmenn unnu nauman sigur á 1. deildar liði Víkings Ólafsvíkur, 3-2, í riðli 3 í A-deild Lengjubikarsins í fótbolta í kvöld.Fannar Hilmarsson kom Ólsurum yfir í Egilshöllinni en miðjumaðurinn nautsterki, Haukur Páll Sigurðsson, jafnaði fyrir Val, 1-1, tíu mínútum síðar og þannig stóðu leikar í hálfleik. Aftur komust Ólsarar yfir með marki Eyþórs Helga Birgissonar eftir fjórar mínútur í síðari hálfleik en Mads Nielsen, Daninn sem Valur er með á láni frá Bröndby, jafnaði leikinn á 63. mínútu. Fyrsta mark Danans í sínum fyrsta leik fyrir Val. Það var svo Haukur Páll Sigurðsson sem skoraði sigurmarkið fimmtán mínútum fyrir leikslok, 3-2. Valsmenn eru með þrjú stig eftir tvo leiki en Ólsarar búnir að tapa báðum sínum leikjum til þessa. Víkingar úr Reykjavík fóru létt með Selfoss í seinni leik kvöldsins í sama riðli en nýliðarnir í Pepsi-deildinni unnu öruggan 4-0 sigur.Sveinbjörn Jónasson heldur áfram að gera það gott fyrir Víkinga á undirbúningstímabilinu en hann skoraði fyrsta mark leiksins á 32. mínútu, 1-0, og þannig var staðan í hálfleik. Sveinbjörn kom til Víkinga frá Þrótti í vetur og skoraði fjögur mörk í fjórum leikjum í Reykjavíkurmótinu. Hann er nú kominn á blað í Lengjubikarnum. Rétt fyrir lok fyrri hálfleiks var Einar Otto Antonsson rekinn af velli hjá Selfossi og það nýttu Víkingar sér í seinni hálfleik.Viktor Jónsson skoraði tvö mörk, á 69. og 81. mínútu, og þar á milli skoraði bakvörðurinn efnilegi Ívar Örn Jónsson. Ívar tryggði Víkingum sigur með aukaspyrnumarki í fyrsta leik Lengjubikarsins gegn Stjörnunni en lokatölur í kvöld, 4-0. Víkingar eru í öðru sæti þriðja riðils með fjögur stig en Selfyssingar með þrjú stig. Þeir unnu Ólafsvíkinga í fyrsta leik riðilsins. Upplýsingar um markaskorara eru fengnar frá fotbolti.net.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira