Íslenski boltinn

Sousa spilar í Árbænum í sumar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fylkis, með Sousa.
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fylkis, með Sousa. Mynd/Heimasíða Fylkis
Andrew Sousa, bandarískur leikmaður, hefur gert eins árs samning við Fylki og mun spila með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar.

Sousa er á 25. aldursári og getur spilað bæði á miðjunni og úti á kantinum. Hann hefur æft með Árbæingum síðustu vikurnar og spilaði með Fylki gegn Stjörnunni í æfingaleik.

Hann á að baki leiki bæði í heimalandinu og í Portúgal en hann var á sínum tíma á mála hjá New England Revolution sem leikur í MLS-deildinni vestanhafs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×