Íslenski boltinn

Jóhann kominn heim í faðm KA-manna

Jóhann við undirskriftina í dag.
Jóhann við undirskriftina í dag. mynd/heimasíða ka
KA-menn fengu góðan liðsstyrk í dag þegar Jóhann Helgason skrifaði undir samning við 1. deildarfélagið.

Það má með sanni segja að Jóhann sé kominn heim en hann er uppalinn KA-maður og á að baki eina 73 leiki fyrir meistaraflokk félagsins.

Jóhann kemur heim frá Grindavík þar sem hann hefur verið frá árinu 2006 fyrir utan sumarið 2012 er hann var í láni hjá KA.

Hjá Grindavík hefur Jóhann verið í lykilhlutverki og var fyrirliði liðsins síðasta sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×