Sport

Kanada vann Bandaríkin og A-riðilinn | Myndband

Kanada vann Bandaríkin, 3-2, í spennandi leik um efsta sætið í A-riðli í íshokkí kvenna á Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí í dag.

Bandaríkin vildu ólm koma fram hefndum fyrir tapið í úrslitaleiknum í Vancouver fyrir fjórum árum en lítil vinátta ríkir á milli liðanna.

Hillary Knight kom kom Bandaríkjunum yfir, 1-0, með marki undir lok annars leikhluta en leikurinn var nokkuð daufur fram að því.

Meghan Agosta jafnaði metin fyrir Kanada snemma í þriðja leikluta og tvö mörk til viðbótar fylgdu í kjölfarið hjá þeim kanadísku.

Þriðja markið var nokkuð vafasamt og þurftu dómarar leiksins að skoða það á myndbandsupptöku en svo fór að markið stóð og staðan, 3-1.

Anne Schleper minnkaði muninn, 3-2, fyrir bandaríska liðið þegar rétt rúm mínúta var til leiksloka. Spennan var svakaleg síðustu mínútuna en Ólympíumeistararnir hengu á sigrinum.

Kanada vann því alla leiki sína í A-riðlinum en Bandaríkin tvo og fylgja Ólympíumeisturunum í útsláttarkeppnina.

Í spilaranum hér að ofan má sjá mörkin og æsispennandi lokasekúndur leiksins í dag.


Tengdar fréttir

Northug ekki með á föstudaginn

Petter Northug, skærasta stjarna Norðmanna í skíðagöngu, verður ekki á meðal keppanda í 15km göngunni á föstudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×