Sport

Bein útsending frá Ólympíuleikunum 2014 | Dagur 6

Vísir er með beina útsendingu frá keppni á Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí í Rússlandi en sjötti keppnisdagur leikanna er í dag.

Dagskrá leikanna má finna hér fyrir neðan en keppni dagsins verður gerð upp í samantektarþætti klukkan 22.00. Hann verður í umsjón Þorkels Gunnars Sigurbjörnssonar.

Það verða alls afhent sex gullverðlaun í dag þar á meðal í elstu greininni í skíðagöngu kvenna, hefbundni 10 km göngu, sem er einmitt fyrsta keppnisgrein dagsins.

Nú er hlé á útsendingunni þangað til í fyrramálið.

Dagskrá 13. febrúar:

09.50 10km Skíðaganga kvenna

11.40 Skautaspretthlaup

12.30 Íshokkí karla: Slóvakía-Bandaríkin

15.05 Samantekt frá degi 5 (e)

15.40 Brekkufimi karla á skíðum (e)

17.00 Íshokkí karla: Kanada-Noregur

19.30 Íshokkí karla: Rússland-Slóvenía (e)

22.00 Samantekt frá degi 6

22.35 Íshokkí karla: Finnland-Austurríki

Ólympíumeistarar verða krýndir í eftirtöldum greinum í dag:

20 km ganga karla í skíðaskotfimi:

10 km hefðbundin skíðaganga kvenna:

Brekkufimi karla á skíðum:

Liðakeppni á baksleðum:

500 metra skautaat kvenna:

1000 metra skautahlaup kvenna:


Tengdar fréttir

Martin Fourcade vann sitt annað Ólympíugull í Sotsjí

Frakkinn Martin Fourcade vann í daga aðra greinina í röð í skíðaskotfimi karla þegar hann tryggði sér gullverðlaun í 20 km skíðagöngu á Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí í Rússlandi.

Saga mannsins með nærfatanafnið er lyginni líkust

Bruno Banani er fyrsti keppandinn frá Suður-Kyrrahafseyjunni Tonga sem keppir á Vetrarólympíuleikunum. Hann er gangandi auglýsing fyrir þýskt fyrirtæki sem fékk hann til að skipta um nafn. Draumur prinsessunnar rættist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×