Íslenski boltinn

Mist komin aftur til Vals

Mist er mætt aftur á Hlíðarenda.
Mist er mætt aftur á Hlíðarenda. Vísir/Getty
Mist Edvardsdóttir er genginn aftur í raðir Vals í Pepsi-deild kvenna í fótbolta en frá þessu er greint á vef félagsins.

Mist, sem á að bak níu landsleiki fyrir Ísland, spilaði með Avaldsnes í Noregi og í Brasilíu á síðasta ári. Hún gerir eins árs samning við Valsmenn.

Hún er uppalin hjá Aftureldingu og lék með liðinu 2007 og 2008 áður en hún gekk í raðir KR. Þaðan fór hún til Vals en hún lék í tvö tímabil með Val áður en hún hélt út í atvinnumennsku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×