Innlent

Bílar brunnu í Kópavogi

Samúel Karl Ólason skrifar
Slökkviliðsmenn voru komnir á vettvang þegar þessi mynd var tekin um fimm leytið í morgun.
Slökkviliðsmenn voru komnir á vettvang þegar þessi mynd var tekin um fimm leytið í morgun. Mynd/Karl S. Gunnarsson
Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var kallað út klukkan fimm í morgun vegna þess að kviknað var í bílum við Hafnargötu í Kópavogi. Íbúar á svæðinu vöknuðu með látum við sprengingu.

Upprunalega var þó tilkynnt um að eldur hefði komið upp í húsi við Hafnarveg í Kópavogi. Í ljós kom þó að kviknað hafði í tveimur bílum sem lagt hafði verið upp við vegg húss.

Um var að ræða steyptan gaflvegg eins og sést á meðfylgjandi mynd og var ekki hætta á að eldurinn myndi berast í húsið.

Einn bíll frá slökkviliðinu var sendur á vettvang og voru slökkviliðsmennirnir fljótir að slökkva eldinn. Þeir voru að störfum á vettvangi í um 50 mínútur.

Ekkert er vitað um upptök eldsins, en tveir bílar eru gjörónýtir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×