Keflvíkingar spila í svörtu í sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. mars 2014 11:45 Jón Ólafur Jónsson, einn af Íslandsmeisturum Keflavíkur árið 1964, og Hörður Sveinsson, besti leikmaður meistaraflokks karla á síðasta ári. Mynd/Heimasíða Keflavíkur
Keflvíkingar ætla að minnast þess í Pepsi-deildinni í sumar að fimmtíu ár eru liðin síðan að Keflavík varð Íslandsmeistari í fótbolta í fyrsta sinn árið 1964. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. „Af því tilefni hefur verið ákveðið að leita aftur til fortíðar og í sumar mun meistaraflokkur karla spila í svörtum treyjum og hvítum buxum en þannig var Keflavíkurbúningurinn einmitt fram til ársins 1972. Varabúningurinn verður áfram gulur eins og í fyrra," segir í frétt á heimasíðu Keflavíkur. Keflavík hefur gert þriggja ára samning við Icepharma um að allir flokkar Keflavíkur spili í Nike-búningum. Jón Ólafur Jónsson, einn af Íslandsmeisturum Keflavíkur árið 1964, og Hörður Sveinsson, besti leikmaður meistaraflokks karla á síðasta ári, kynntu nýja búninginn í höfuðstöðvum Landsbankans í gær en Landsbankinn er aðalstyrktaraðili Keflavíkurliðsins. Keflavík endaði í 9. sæti í Pepsi-deildinni á síðasta sumri en liðið náði í 83 prósent stiga sinna eftir að Kristján Guðmundsson tók við liðinu 19. júní eftir að hafa aðeins náð í fjögur stig í fyrstu sjö umferðunum undir stjórn Zoran Daníels Ljubicic. Óli B. Jónsson þjálfaði fyrsta Íslandsmeistaralið Keflavíkur árið 1964 en liðið fékk þá þremur stigum meira en lið ÍA eftir að hafa unnið 6 leiki og gert 3 jafntefli í 10 leikjum. Það má sjá úrslit þessa móts hér.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira