Jóhannes Karl til liðs við Fram Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. desember 2013 10:10 Jóhannes Karl er þekktur fyrir sín þrumuskot. Mynd/Daníel
Framarar hafa gengið frá samningi við Jóhannes Karl Guðjónsson. Miðjumaðurinn mun leika undir stjórn bróður síns Bjarna hjá Safamýrarliðinu næstu tvö árin. Framarar kynntu Jóhannes Karl til leiks á blaðamannafundi í íþróttahúsi sínu í dag. Skagamaðurinn 33 ára er stærsti bitinn sem Framarar hafa fengið til sín undanfarnar vikur. Fjölmargir leikmenn hafa gengið til liðs við félagið en flestir þeirra með reynslu úr neðri deildum íslenskrar knattspyrnu. Jóhannes Karl fékk leyfi frá Skagamönnum til að ræða við önnur félög þar sem hann hafði ekki hug á að spila í næstefstu deild. Valsmenn ræddu við Jóhannes Karl og sömuleiðis sýndu FH-ingar og KR-ingar honum áhuga um tíma. Áhuginn reyndist mestur hjá Frömurum sem misst hafa marga sterka pósta úr leikmannahópi sínum undanfarnar vikur. Almarr Ormarsson hélt til liðs við KR auk þess sem ekki var samið á nýjan leik við neinn af erlendum leikmönnum Framara. Þá var Hólmbert Aron Friðjónsson seldur til Celtic á dögunum. Jóhannes Karl, sem á 34 landsleiki að baki fyrir Íslands, lék sem atvinnumaður í 15 ár. Racing Genk, RKC Waalwijk, Real Betis, Aston Villa, Wolves, Leicester, AZ Alkmaar, Burnley og Huddersfield nutu öll góðs af miðjumanninum á löngum ferli. Miðjumaðurinn er af mikilli fótboltafjölskyldu. Auk þeirra Bjarna er Þórður Guðjónsson einnig bróðir þeirra en faðir þeirra er sem kunnugt er þjálfarinn Guðjón Þórðarson. Þá er atvinnumaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson hálfbróðir þeirra félaga en þeir eiga sömu móður.Jóhannes Karl og Bjarni á blaðamannafundinum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Albert svaraði eftir að hafa verið sakaður um hugleysi Fótbolti Salah ekki með Liverpool til Ítalíu Enski boltinn Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull Íslenski boltinn „Hortugasta klapp sem ég hef séð“ Körfubolti „Hann er með einhverjar Ibiza-myndir af Slot“ Enski boltinn Dæmd í fjögurra ára fangelsi Fótbolti „Ég myndi bróka hann inn í klefa“ Körfubolti Búist við að Salah verði hent úr hóp Enski boltinn Þriggja ára strákur setti heimsmet í skák Sport Slot: „Hef ekki hugmynd hvort Salah hafi spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool“ Enski boltinn Fleiri fréttir Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina KSÍ skiptir um mótakerfi og smíðar nýjan vef Damir Muminovic til Grindavíkur Vestramenn sækja son sinn suður Einn fljótasti leikmaður Bestu deildarinnar orðinn Þróttari Aron Jó leystur undan samningi hjá Val Kynntu fyrst Loga Ólafs en svo Jóa Kalla sem á að koma FH á toppinn Atli kveður KR og flytur norður Theodór Elmar hættur hjá KR Hrannar Bogi inn eftir brotthvarf Caulkers Segir ónefndan aðila hafa unnið gegn sér hjá Breiðabliki Alex Freyr frá Fram í Njarðvík Víkingar fá ungan og spennandi kantmann Nýliðarnir fá níutíu leikja mann Sjá meira