Lífið

Ég kann að standa á höndum

Marín Manda skrifar
Maggý Mýrdal
Maggý Mýrdal
Maggý Mýrdal eigandi Fonts.is var spurð spjörunum úr og Lífið komst að því að strætóferðir geta stundum verið eins og góð hugleiðsla.

 

Nafn? Maggý Mýrdal

Aldur? 34 ára

Starf? Grafískur hönnuður og eigandi Fonts.is



Hvern faðmaðir þú síðast? "Sæta manninn minn." 

En kysstir?" Ég kyssti bóndann bless í morgun."

Hver kom þér síðast á óvart og hvernig?

"Dóttir mín hún Sóldögg, hún er alltaf að koma mér á óvart. Eftirminnilegast er málverk sem hún málaði um daginn. Hún er fædd listakona."



Hvaða galla í eigin fari ertu búin að umbera allt of lengi?

"Ég og klukka eigum ekki mikla samleið, ég er alltaf á leiðinni, alltaf aðeins of sein eða alltaf að drífa mig. Það er ekki vinsælt."

Ertu hörundsár?

"Ég var það meira þegar ég var yngri, þegar maður þroskast verður maður sterkari og tekur hlutunum ekki of alvarlega."

Dansarðu þegar enginn sér til?

"Ég er alltaf með tónlist í gangi og á það til að dilla mér, mér finnst mjög gaman að dansa."

Hvenær gerðirðu þig síðast að fífli og hvernig?

"Maður þarf að hafa svolítið gaman af lífinu og leyfa sér að vera kjáni stundum og hlæja hátt, vera ekki of alvarlegur og taka sig ekki of hátíðlega." 

Hringirðu stundum í vælubílinn?

"Já, maður er svo sem mannlegur. Sumir dagar eru verri en aðrir, annars eru flestir dagar bara góðir. Betra er að hlæja en gráta og ég reyni að vera jákvæð." 

Tekurðu strætó?

"Það kemur fyrir og það er svakalega róandi og góð hugleiðsla. Ég mæli með því að allir taki strætó einstaka sinnum. Maður sér líka hverfin á annan hátt í strætó, fer á staði sem maður er ekki vanur og það er alltaf skemmtilegt."

Hvað eyðirðu miklum tíma á Facebook á dag?

"Alltof miklum held ég, ég held ég sé meira og minna alltaf með Facebook opið. Má maður segja frá því?"

Ferðu hjá þér þegar þú hittir fræga eða heilsarðu þeim?

"Nei, það geri ég ekki, ég heilsa bara þeim sem ég þekki. Eru ekki allir jafnir?" 

Lumarðu á einhverju sem fáir vinir þínir vita um þig?

"Ég kann að standa á höndum. "

Hvað ætlarðu alls ekki að gera um helgina?

"Ég ætla að halda þrítugsafmæli fyrir litlu systir mína, Ingunni Mýrdal, það verður bara fjör."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.