Ég hef alltaf verið að mála og teikna en ég er ekki mikið að horfa á sjónvarp og svoleiðis svo ég geri ekki mikið annað en að teikna í frítíma mínum,“ segir Sigrún Rós Sigurðardóttir hlæjandi. „Við maðurinn minn opnuðum tattústofuna Bleksmiðjuna fyrir þremur árum svo það hefur hentað mér vel að vera frjálsari í listinni.“

Sigrún Rós vinnur að listinni í bílskúrnum heima en fram undan er sýning á verkunum hennar á Energyu í Smáralind. Hægt er að skoða verkin nánar á Facebook-síðunni Sigrún Rós Artwork.