Sjáðu markmiðin þeirra - ertu klár í slaginn? Ellý Ármanns skrifar 4. október 2013 08:15
Við spurðum nokkra þjóðþekkta einstaklinga um markmiðin þeirra í Meistaramánuði. Það stóð ekki á svörunum. Hvaða markmið hefur þú sett þér í október?Karl Berndsen.Með blöðkur á fullri ferð Karl Berndsen hárgreiðslu- og förðunarmeistari „Allir mánuðir hjá mér framveigis verða Meistaramánuðir. Nú lifum við lífinu til fullnustu. Ég er núna að mastera skriðsund sem ég hef alltaf þráð að geta. Ég hef alltaf verið hálfdrukknaður á miðri leið en nú er kallinn kominn með blöðkur og kominn á fulla ferð. Ég ætla að ná því markmiði í mánuðinum og fullkomna það.“Arnar Grant og viti menn - vinur hans Ívar líka.Leysa missætti og fyrirgefaArnar Grant líkamsræktarfrömuður „Í október sem og aðra mánuði er ég með skýr markmið bæði fyrir sjálfan mig og viðskiptavini mína þegar kemur að líkamsrækt og mataræði. Í Meistaramánuði er þó tilvalið tækifæri til þess að bæta um betur og setja sér eitt til þrjú aukamarkmið. Sjálfur ætla ég að búa til nýjan heilsudrykk á hverjum degi, skrá uppskriftirnar og gefa þeim einkunn." „Þá er ég kominn með uppskriftabók sem á eftir að nýtast mér vel aðra mánuði ársins. Ekki má heldur gleyma „mýkri“ markmiðunum sem geta t.d. falið í sér að sýna meiri hlýju í garð náungans og hlúa betur að fjölskyldu og vinum. Að gera sitt besta til þess að leysa missætti og fyrirgefa. Að vera tilfinningalega opinn hvort sem um ræðir að sýna tilfinningar eða leyfa sér að finna þær meira sjálfur. Það er alltaf jákvætt þegar fólk ákveður að taka sér tak hvort heldur líkamlega eða andlega." „Ég aðhyllist þó ávallt hinn gullna meðalveg og legg áherslu á að fólk sníði sér stakk eftir vexti og setji sér raunhæf markmið. Það er svo miklu skemmtilegra að ná markmiðinu heldur en ekki. Auðvitað má þetta samt ekki vera of auðvelt. Þá gætum við bara öll ákveðið að liggja lengur uppi í sófa á kvöldin og borða meiri ís.“Birta Líf Björnsdóttir hefur vit á að setja sér skýr markmið.Ætlar að komast í splitt Birgitta Líf Björnsdóttir flugfreyja hjá Icelandair „Markmiðin mín í meistaramánuðinum eru að borða hollara en til að ná því ætla ég að skipuleggja máltíðirnar betur og hafa BARA einn nammidag í viku, hann á það til að teygjast yfir helgina. Vakna snemma alla daga og til að ná því ætla ég einfaldlega að fara fyrr í háttinn svo að ég sé minna þreytt þegar ég vakna." „Ég vil geta hlaupið 10 km auðveldlega og til að ná því ætla ég að vera dugleg að fara í hóptíma sem auka þol, einsog Tabata og Fitness Form, og hlaupa á brettinu á eftir. Svo ætla ég að komast aftur í splitt eftir tognun. Til að ná því ætla ég að vera duglegri að fara í Hot Yoga og teygja betur á eftir dansæfingar.“Steinunn Ólína má eiga það að hún er fyndin.Aðeins meira súrefni til heilans Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona „Ég ætla að borða heimsmeistarköku Sollu þegar mér dettur í hug enda viðeigandi í meistaramánuði en láta önnur sætindi alveg í friði. Ég ætla líka að sleppa því að borða brauð og hveitivörur. Ég ætla að einsetja mér að vera fjarska góð við þá sem ég umgengst heima og heiman, láta ekki skapið hlaupa með mig í gönur og fara í göngutúra nokkrum sinnum í viku." „Mín meistaramarkmið eru ekkert flókin en með því móti tekst mér kannski að ná markmiðum mínum sem eru aukinn agi, ofurlítið þyngdartap, enn betri samskipti við alla sem ég umgengst og aðeins meira súrefni til heilans. Mér þykir þegar ég hugsa um það vænst um heilann af öllum líffærunum svo ég hugsa að ég reyni að halda áfram að tileinka mér eitthvað nýtt og læra eitthvað fallegt utanað þegar ég kem því við.“Ólafía ætlar að skipuleggja sig betur.Minnka sælgætisátið Ólafía B. Rafnsdóttir formaður VR „Markmiðin mín í Meistaramánuðinum eru eftirfarandi; vera skipulagðari svo að ég nái að komast betur yfir öll verkefnin mín, taka frá sérstakan tíma til að lesa, bóka fund með sjálfri mér þar sem ég get skipulagt vikuna. Hitta fólkið mitt oftar en þau gefa mér aukinn kraft og gleði til að sinna starfinu vel. Svo ekki sé minnst á hreyfingu – göngutúrar eru þar efst á blaði - og minnka sælgætisátið - á það til að detta í gotterísskálina á kvöldin.“ Post by Lífið á Visir.is.
Mest lesið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Einvígi aldarinnar endurtekið Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Lífið Milljónir í að efla tónleikastaði í miðbænum Tónlist Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Lífið Fleiri fréttir Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Sjá meira