"Íslendingar kaþólskari en páfinn í heilbrigðismálum“ Karen Kjartansdóttir skrifar 15. júlí 2013 20:05 ,,
Íslendingar eru oft kaþólskari en páfinn þegar kemur að rekstri, allt virðist eiga að vera á hendi ríkisins." Þetta segir fyrrverandi framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga sem vinnur að því að kortleggja umfang íslenska heilbrigðiskerfisins. Ummæli heilbrigðisráðherra um hagræðingu innan heilbrigðiskerfins og frekari einkarekstur innan þess hafa vakið upp misjöfn viðbrögð. Formaður Samfylkingarinnar hefur notað orð eins og dólgakapítalisma í tengslum við þetta mál og formaður Vinstri grænna hefur bent á að Bandaríkin reki dýrasta heilbrigðiskerfi heims og að sökin sé óhagkvæmur einkarekstur. Friðfinnur Hermannsson, ráðgjafi hjá Gekon er fyrrverandi framkvæmdastjóri heilbrigðisstofnunar Þingeyinga, hann vinnur nú að því að kortleggja íslenska heilbrigðiskerfið, segir að koma þurfi umræðunni úr pólitískum skotgröfunum. „Hérna erum við einhvern veginn kaþólskari en páfinn þegar kemur að rekstri og það er eins og allt eigi að vera á hendi hins opinbera og rekið af því. Það sem skiptir máli er bara góð heilbrigðisþjónusta sem allir geta nýtt sér og notað án tillits til efnahags. Hvernig við gerum það svo er bara úrlausnarefni," segir Friðfinnur. Nú þegar fari um 25% af kostnaði ríkisins við heilbrigðisþjónustuna í einkarekna þjónustu sem oft hafi gefist mjög vel. Nauðsynlegt sé að gera enn betur og til þess megi nýta reynslu Norðmanna og Svía af frekari einkarekstri. „Ég hvet alla til að slaka á og leyfa sér að velta því fyrir sér hvort hægt sé að gera þetta öðruvísi en nú er og hvort ekki megi finna tækifæri til að gera enn betur," segir Friðfinnur. En við niðurskurð, einkum í heilbrigðiskerfinu, gengur oft illa að ná fram raunverulegri hagræðingu því kostnaðurinn flyst aðeins til innan kerfisins. Friðfinnur segir það ekki séríslenskt heldur hafi allar þjóðir líklega fengið að kynnast þessu. Því þurfi að gæta þess vel að horft sé heildrænt á kerfið og nýta þekkingu innan þess. Þetta hafi til dæmis komið skýrt í ljós við athugun á fyrirhuguðum niðurskurði á Austurlandi fyrir nokkrum árum. „Niðurstaðan þá var að þegar heildarmyndin var skoðuð var hægt að efast um nokkrun þjóðhagslegan ávinning af þeim niðurskurði," segir Friðfinnur.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Sjá meira