María Birta vill að málið verði gott fordæmi Karen Kjartansdóttir skrifar 15. júlí 2013 20:45
Leikkonunni Maríu Birtu Bjarnadóttur hafa verið dæmdar skaðabætur vegna klúrrar auglýsingar sem sett var á stefnumótasíðu ásamt símanúmeri hennar. Hún segist vona að mál hennar vekji fólk til umhugsunar áður en það setur róg inn á netið Kvöld eitt árið 2011 fóru Maríu Birtu skyndilega að berast símtöl frá mönnum sem spurðu hvort hægt væri að kaupa hjá henni kynlíf. Henni var brugið og komst fljótlega að því að einhver hafði sett símanúmer hennar við klúra auglýsingu á stefnumótavef. Hún kærði málið og leiddi lögreglurannsókn í ljós að kona sem var henni málkunnug hafði sett skilaboðin inn á vefinn. Konan var í byrjun mánaðarins dæmd til að greiða Maríu 250 þúsund krónur í skaðabætur. „Mér finnst að réttlætið hafi sigrað og ég er ánægð með niðurstöðuna," segir María Birta. Maríu Birtu sárnar mjög að einhverjir hafi sakað hana um fégræðgi í tengslum við þetta mál. Það hafi kostað hana miklu meira en þær skaðabætur sem hún fái vegna þessa. „Fólk má alveg halda það sem það vill en ég held að þeir sem eitthvað þekkja til geri sér fyllilega grein fyrir því að það hefur kostað mig mjög mikla peninga að standa í þessu máli. En ég myndi aldrei láta valta svona yfir mig án þess að svara fyrir það. Mér finnst fólk fara of frjálsri hendi um internetið. Það skrifar oft það sem því dettur í hug án þess að pæla í afleiðingum orða sinna og þetta þykir mér dæmi um það." Stúlkan sem var dæmd hefur fullyrt að um vinarhrekk hafi verið að ræða sem María Birta hafi ekki kunnað að taka. María Birta segir það ósatt enda hafi þær ekki verið vinkonur heldur aðeins málkunnugar. María Birta vonar að málið verði fordæmisgefandi. „Ég vona ekki að hér fari allir að kæra alla þá sem eitthvað segja um þá heldur að fólk hugsi áður en það skrifar á netið. Svona gerir maður bara ekki.“
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Fleiri fréttir Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Sjá meira