Segir Vestfirðinga ná vopnum sínum á ný Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 18. júlí 2013 07:00 Daníel Jakobsson, bæjarstjóri á Ísafirði „
Þeir síðustu verða fyrstir,“ segir Guðmundur Óli Tryggvason hjá Fasteignasölu Vestfjarða, en fasteignaverð hefur hvergi hækkað jafn mikið frá hruni en þar, eða 24 prósent. Hann segir að Vestfirðir hafi sífellt rekið lestina í þessum efnum fyrir hrun og því eigi þeir þessa hækkun inni. Hann segir að Vestfirðingar búi þannig vel að því að hafa ekki farið offari líkt og víða gerðist fyrir hrun. Hann segir að nú skorti leiguhúsnæði á Ísafirði og fjölbreytnin mætti vera meiri hvað varðar úrval á fasteignum til sölu. „Ég finn þetta á eigin skinni,“ segir Daníel Jakobsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. „Ég hefði átt að kaupa strax þegar ég kom hingað fyrir þremur árum, þetta er orðið mun erfiðara núna,“ bætir hann við. Hann segir margt geta útskýrt aukna eftirsókn í húsnæði fyrir vestan. „Staðan í atvinnumálum er með ágætu móti, það geta allir fengið vinnu sem vilja. Til dæmis er verið að auglýsa þrjú hálaunastörf hjá bænum. Spítalinn hefur verið að ráða fólk, það er verið að auglýsa eftir fólki á Þróunarsetrinu og svo hefur Innheimtustofnun verið að leita eftir fólki. Svo er mikil eftirspurn eftir verkafólki. Það má segja að við séum að ná vopnum okkar á ný.“ Það er líka nóg um að vera. Framkvæmdir við nýtt hjúkrunarheimili eru þegar hafnar, unnið er að gerð snjóflóðavarnar, uppbygging hefur fylgt úthafsrækjuveiðum sem gefin var frjáls fyrir þremur árum og ferðaiðnaði hefur vaxið fiskur um hrygg. Til að mynda tók nýtt hótel til starfa nú í sumarbyrjun.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Sjá meira