Sjálfstæðismenn notfærðu sér veikindi Ólafs F. Kristján Hjálmarsson skrifar 18. júlí 2013 12:41 "Ég fékk mörg símtöl frá vinum mínum sem horfðu á beina útsendingu frá Kjarvalsstöðum og sáu skelfingarsvipinn á mér," segir Þorbjörg Helga. "
Ólafur F. var veikur maður og það vissu allir. Allir borgarfulltrúar misnotuðu aðstæður hans en við í Sjálfstæðisflokknum gengum skrefinu lengra en hinir með því að bjóða honum borgarstjórastólinn." Þetta segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir borgarfulltrúi í viðtali í nýjasta tölublaði af Nýju lífi sem kom út í dag. "Ég er enn miður mín og skammast mín fyrir að hafa tekið þátt í að gera Ólaf F. Magnússon að borgarstjóra í Reykjavík. Þegar það gerðist vorum við borgarfulltrúarnir sárir eftir REI-málið. Í því máli tókum við sannfæringuna fram fyrir liðsheild og við töldum okkur vera að vinna þjóðþrifamál, með því að stöðva yfirvald sem ætlaði að keyra málin í gegn. Þess vegna þótt okkur gríðarlega ósanngjart að missa meirihlutann í kjölfarið."Misnotkun á valdi Í viðtalinu fer Þorbjörg Helga meðal annars yfir borgarstjórnarsamstarf Sjálfstæðismanna við Ólaf F. sem hófst í janúar 2008, rétt eftir REI-málið svokallaða. Samstarfið var kynnt á Kjarvalsstöðum. Geðheilsa Ólafs F. hafði þá verið til umræðu í fjölmiðlum og vakti það athygli að hann hafði verið krafinn um læknisvottorð við endurkomuna í stjórnmálin. Þorbjörg Helga lýsir því hvernig henni leið þann dag. "Þetta var alls ekki góður dagur. Vilhjálmur og Ólafur unnu ágætlega saman að einhverju leyti en þetta var alls ekki gott. Þetta var aldrei gott. Ég man mjög skýrt eftir því þegar Ólafur hafði verið borgarstjóri í nokkra mánuði og einn úr okkar hópi með þekkingu á geðheilbrigðismálum gekk inn á fund til okkar borgarfulltrúanna og sagði okkur fullkomlega meðvirk." Þóra Tómasdóttir, ritstjóri Nýs lífs, spyr þá hvort það hafi verið valdagræðgi að gera Ólaf að borgarstjóra. "Allavega misnotkun á valdi að mínu mati," segir Þorbjörg Helga. Þóra spyr þá hvort Sjálfstæðisflokkurinn hafi fórnað hagsmunum borgarbúa með því að gera mann sem þeir treystu ekki að borgarstjóra svo þeir gætu sjálfir komist nær völdum. "Við gátum ekki gert okkur fulla grein fyrir stöðunni strax en um leið og við gerðum það, áttum við að ljúka þessu samstarfi. Ekki síst Ólafs vegna," segir Þorbjörg Helga.Slettist upp á vinskapinn Í viðtalinu við Nýtt líf lýsir Þorbjörg Helga því einnig hvernig slitnaði upp úr áralöngu vinasambandi hennar og Gísla Marteins Baldurssonar þegar hún ákvað að bjóða sig fram í annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins eins og fjórir aðrir, þar á meðal Gísli Marteinn. "Hann vissi að ég væri að hugsa um að bjóða mig fram í annað sætið, en þegar ég tilkynnti honum ákvörðun mína varð hann mjög ósáttur," segir Þorbjörg Helga.
Mest lesið Loka fyrir umferð til að rannsaka banaslys Innlent Fauk í Kristrúnu í fyrirspurnartíma Innlent Umdeildir leikir í sumarbúðum: „Það eru sem betur fer breyttir tímar“ Innlent Keyrir út póst með nauðgunardóm á bakinu Innlent Rúta skíðlogar í Hafnarfirði Innlent Neita öll sök í Reykholtsmálinu Innlent Pósturinn sendir starfsmanninn í leyfi Innlent Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Erlent Tilkynnt um mann með sverð Innlent Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Erlent Fleiri fréttir Eins og ef einhver myndi hella vatni yfir tölvu Ólafsfjarðarmúla lokað vegna snjóflóðs Kjartan Atli leiðir Samfylkinguna í Garðabæ Heimsmarkaðsverð í hæstu hæðum, sannir aðdáendur Laufeyjar og harka í ESB umræðum Tilkynnt um mann með sverð Stöðvuðu stút með naglamottu „Ég hef aldrei heyrt aðra eins fyrirspurn á ævinni“ Fyrsta konan sem skipuð er yfirlögregluþjónn Fauk í Kristrúnu í fyrirspurnartíma Loka fyrir umferð til að rannsaka banaslys Umdeildir leikir í sumarbúðum: „Það eru sem betur fer breyttir tímar“ Rúta skíðlogar í Hafnarfirði Neita öll sök í Reykholtsmálinu Pósturinn sendir starfsmanninn í leyfi Óveðrinu slotar í bili og átak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Kæra aftur útboð Vestmannaeyjabæjar á líkamsræktarstöð Enginn verði á biðlista eftir hjúkrunarrými eftir þrjú ár Bein útsending: Ný áætlun fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila Flestir telja veikindarétt og starfsöryggi ríkari hjá hinu opinbera Um 500 leituðu skjóls í fjöldahjálparstöð og á hótelum Aldrei séð flóð falla á þessum stað á átján ára ferli Guðmundur Ingi snýr aftur á þing í dag „Mjög mikill fjöldi sem við vorum að taka á móti“ Keyrir út póst með nauðgunardóm á bakinu Hundruð manns í fjöldahjálparstöðvum fyrir norðan: „Það var bara snælduvitlaust veður“ Eldur kviknaði í fjölbýli í Úlfarsárdal Þrír fluttir á slysadeild ofan af Hellisheiðinni eftir tvo árekstra Afturkölluð tilnefning grunsamlegri eftir misvísandi svör Rúta út af og Þingvallavegi lokað Tvö snjóflóð skammt frá byggð í Siglufirði Sjá meira