Noti aðra ávexti til að forðast lifrarbólgu Magnús Þorlákur Lúðvíksson skrifar 16. mars 2013 06:00 Vinsælt er að nota frosin ber í ýmiss konar kalda drykki. Ebba Guðný Guðmundsdóttir heilsukokkur bendir á að ýmislegt sé hægt að nota í stað berja. Nordicphotos/Getty
Fjöldi Dana hefur á síðustu mánuðum greinst með lifrarbólgu A og leikur grunur á því að einstaklingarnir hafi smitast vegna neyslu á frosnum berjum. Vinsælt er að nota frosin ber í ýmsa drykki, eftirrétti og kökur og hafa Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, Matvælastofnun og sóttvarnarlæknir því hvatt almenning til þess að sjóða framvegis frosin ber áður en þau eru notuð í kaldan mat eða drykki. Lifrarbólga A er veirusjúkdómur sem getur truflað starfsemi lifrarinnar. Hann er mjög sjaldgæfur á Íslandi og 25 til 30% þeirra sem sýkjast fá engin einkenni. Annars geta liðið tvær til sex vikur frá því að einstaklingur smitast þar til einkenni koma fram. Einkennin eru lík flensueinkennum fyrst um sinn en sjúkdómurinn getur einnig valdið gulu og kláða. Yfirleitt gengur lifrarbólga A sjálfkrafa yfir án þess að til meðferðar þurfi að koma en í einstaka tilvikum getur hann valdið óafturkræfri lifrarbilun. Alls 30 tilvik sjúkdómsins hafa komið upp í Danmörku að undanförnu en rannsókn á faraldrinum stendur yfir. Eins og áður sagði er mælt með því að frosin ber verði soðin áður en þau eru notuð í mat en neytendum hefur lengi verið ráðlagt að sjóða frosin hindber fyrir notkun vegna hættu á nóróveirusýkingum. Það að sjóða frosinn mat eyðir öllum bakteríum og veirum sem leynst geta í matnum. Hins vegar getur suða eytt ákveðnum ensímum sem hjálpa til við meltingu matar auk þess sem sum vítamín eru viðkvæm fyrir miklum hita. Ebba Guðný Guðmundsdóttir heilsukokkur segir mögulegt að nota ýmislegt annað en frosin ber í kalda drykki. „Í stað berja er hægt að nota til dæmis frosna ávexti. Ég get nefnt sem dæmi frosinn mangó sem stundum er hægt að kaupa og ferskjur sem eru rosa góðar í drykki,“ segir Ebba Guðný og heldur áfram: „Ég geri líka oft kakósjeika þar sem ég nota bara banana en engin ber. Enda þola ekki allir ber, sem eru yfirleitt súr.“ Loks mælir Ebba Guðný með því að fólk tíni sjálft ber á sumrin. „Það tekur ekki nema nokkra klukkutíma að fylla heilu föturnaar og þá er maður með birgðir fyrir allan veturinn. Bæði finnur maður bláber úti um allt hérna og þá búa margir svo vel að þekkja einhvern sem er með rifsberjarunna í garðinum hjá sér. Þá er bara að biðja um leyfi og fara að tína.“
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira