Fordæmalaus ákvörðun Gests og Ragnars - óvíst hvort þeir mæti í aðalmeðferð Höskuldur Kári Schram skrifar 9. apríl 2013 12:53 Ragnar Hall og Gestur Jónsson.
Gestur Jónsson, verjandi Sigurðar Einarsson, í Al-Thani málinu segir að ákvörðun hans um að segja sig frá málinu standi þrátt fyrir að héraðsdómur hafi hafnað þeirri beiðni. Málið er því komið í algjöran hnút og óvíst hvort aðalmeðferð hefjist á fimmtudag. Ragnar H. Hall, verjandi Ólafs Ólafssonar, og Gestur Jónsson, verjandi Sigurðar Einarssonar, í Al-Thani málinu tilkynntu í gær að þeir hefðu óskað eftir lausn frá störfum sem verjendur í málinu. Þeir telja að ítrekað hafi verið brotið á rétti skjólstæðinga þeirra til réttlátrar málsmeðferðar. Héraðsdómur hafnaði hins vegar beiðni lögmannanna í gær en aðalmeðferð í málinu á að hefjast á fimmtudag. Dómari taldi allar líkur á því að það myndi valda allt of miklu töfum að skipta um verjendur á þessu stigi málsins. Gestur Jónsson, hæstaréttarlögmaður, sagði í samtali við fréttastofu í morgun að ákvörðun sín frá því í gær standi og það sama gildir um Ragnar Hall. Gestur sagðist ekki vita hvort hann muni mæta í héraðsdóm á fimmtudag þegar aðalmeðferð hefst. Þeir lögfræðingar sem fréttastofa talaði við í morgun segja að þessi staða sé í raun fordæmalaus og óljóst hvaða áhrif hún kann aða hafa á framhald málsins. Sveinn Andri Sveinsson, hæstaréttarlögmaður, telur hins vegar að verjendur geti ekki sagt sig frá máli með þessu hætti. Hann segir að lögmönnum sé skylt að taka við tilnefningum sem verjandi. „Það er bara þeirra ákvörðun hvort þeir mæta eða ekki. Dómari getur haldið áfram með aðalmeðferð málsins þó að þeir mæti ekki. Hann er búinn að ákveða að þessi aðalmeðferð fari fram og ef sakborningur og verjandi mæta ekki þá er það ekki vandamál dómsins, þetta gæti verið fallið til réttarspjalla fyrir sakborning í málinu Það þýðir að það er ekki haldið uppi almennilegum vörnum fyrir ákærða í málinu," segir Sveinn Andri. En hvaða afleiðingar kann þetta að hafa fyrir Gest og Ragnar sem lögmenn? „Ég skal ekkert segja til um það en þeim ber að sinna sínum skyldum sem verjendur og ef þeir mæta ekki í aðalmeðferð málsins þá auðvitað eru þeir ekki að sinna sínum skyldum sem verjendur - og það er ekki sniðugt," segir Sveinn Andri að lokum.
Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Sjá meira