Ihanna selur í París Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 2. desember 2013 16:00 Nýjasta heimilislína Ingibjargar Hönnu, púðarnir Dot og Loop, er komin í sölu í París. Púðarnir vöktu athygli útsendara einnar flottustu hönnunar og lífsstílsverslunar í borginni, Home Autour du Monde á sýningu nú í haust.mynd/gva
Home Autour du Monde í París hefur tekið nýjustu hönnun Ingibjargar Hönnu Bjarnadóttur í sölu, púðana Dot og Loop. Ég er rosalega glöð með þetta, Þetta er svo falleg búð,“ segir Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir en ein flottasta hönnunar og lífstílsverslunin í París, Home Autour du Monde hefur tekið í sölu, nýjustu heimilisvöru Ingibjargar, púðana Dot og Loop. Púðarnir vöktu athygli útsendara verslunarinnar á sýningunni Maison&Objet í París í haust en Ingibjörg kynnti vörur sínar þar.Dot og Loop Nýju púðarnir fást hér á landi í Epal og Hrím, At Home á Akranesi og í Sirku á Akureyri.„Hún vissi strax hvað hún vildi og benti bara á þær vörur, ég þurfti ekkert að selja henni þetta,“ segir Ingibjörg hress. Hún tók einnig þátt í sýningunni Blickfang í Kaupmannahöfn á þessu ári, þar sem púðarnir vöktu einnig athygli og voru meðal annars myndir af púðunum notaðar í kynningarefni sýningarinnar. „Það var ótrúlega mikill heiður og gaman að sjá púðana á heilsíðuauglýsingu í tímaritinu RUM og á öllum dreifimiðum og bæklingum sýningarinnar.“ Ingibjörg Hanna hefur vakið athygli fyrir stílhreina hönnun en meðal vörulína eftir hana má nefna Wood/wood/wood-línuna sem inniheldur kaffikrúsir og kertastjaka úr beyki, sem hún hannaði ásamt Höllu Björk Kristjánsdóttur. Ingibjörg er einnig höfundurinn á bak við hið vinsæla herðatré Krumma og snagann Snigil svo eitthvað sé nefnt. Púðarnir Dot og Loop eru sjálfstæð viðbót við Experience-línuna sem Ingibjörg sendi frá sér á síðasta ári og innihélt bæði púða og viskustykki. „Ég leik mér áfram með línuteikningu og form í nýju púðunum líkt og ég gerði í Experience. Munstrið er í föstu formi sem síðan kemur einhver óregla á,“ útskýrir Ingibjörg. „Svo er von er á Experience-sængurverasettum frá mér í vor og eins langar mig til að búa til fleiri textílvörur í Dot og Loop-línunni.“ Nánar má forvitnast um hönnun Ingibjargar á www.ihanna.net.
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Sjá meira