Live-tónlist í bíósalnum á RIFF í kvöld Ólöf Skaftadóttir skrifar 4. október 2013 12:00 Sigríður Thorlacius og Guðmundur Óskar eru bæði í hljómsveitinni Hjaltalín sem hafa samið tónlist við þögla kvikmynd leikstjórans Ani Simon-Kennedy. Mynd/ Álfheiður Erla Guðmundsdóttir „
Við erum búin að vera að undirbúa þetta lengi og erum spennt fyrir kvöldinu,“ segir Guðmundur Óskar, bassaleikari hljómsveitarinnar Hjaltalín sem flytur tónlist sína á frumsýningu myndarinnar Days of Gray í Gamla-bíói í kvöld. Frumsýningin er óvenjuleg að því leytinu til að kvikmyndin sem um ræðir er þögul, og tónlist Hjaltalín kemur í stað díalogs. Þetta er fyrsta kvikmynd bandaríska leikstjórans Ani Simon-Kennedy í fullri lengd en hvatinn að gerð hennar var einmitt tónlist Hjaltalín, sem leikstjórinn sá á tónleikum í Tékklandi. „Þetta er dálítið sérstakt verkefni vegna þess að þetta eru í rauninni bara áttatíu mínútur af tónlist - það er líka svo gaman hvernig samstarfið kom til. Þetta er ekki hefðbundin gerð tónlistar við kvikmyndir heldur semur leikstjórinn handritið eftir að hafa séð okkur spila,“ útskýrir Guðmundur. „Um leið og var búið að skjóta myndina, í fyrra, tókum við tíu daga þar sem við gerðum þessa tónlist og kláruðum myndina,“ segir Guðmundur jafnframt. Hjaltalín settu upp forsýningu verkinu á Iceland Airwaves í fyrra sem einhverjir hafa eflaust séð. „Síðan þá er búið að breyta myndinni aðeins og svo vantar tvo meðlimi hljómsveitarinnar sem eru í útlöndum, þau Rebekku og Viktor,“ bætir hann við. „Þannig að við þurfum að sníða stakk eftir vexti, og fáum til að mynda Bjarna Frímann inn sem staðgengil Viktors á fiðlu.“ „Svo er að koma út plata með þessari tónlist í haust. Við höfum valið lög úr myndinni og sungið yfir önnur,“ segir Guðmundur. Days of Gray gerist í fjarlægri framtíð og segir frá einstakri vináttu drengs og stúlku. Myndin er laus við öll samtöl og því spilar tónlist hljómsveitarinnar veigamikið hlutverk í henni
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Sjá meira