Spennandi ferðalag til London fyrir nútímakonuna Marín Manda skrifar 4. október 2013 11:00 Bjargey Aðalsteinsdóttir og Sigrún Lilja Guðjónsdóttir. fréttablaðið/pjetur
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir eigandi Gyðja Collection og Bjargey Aðalsteinsdóttir Íþróttafræðingur eru fararstjórar í ferðinni Ný og betri – Konur til athafna. "Okkur langaði að bjóða upp á einstaka ferð sem myndi henta nútímakonunni, hvar sem hún er stödd í lífinu. Við munum upplifa London og á sama tíma næra okkur að innan og utan og vera í góðum félagsskap,“ segir Bjargey Aðalsteinsdóttir íþróttafræðingur sem nú bregður á leik sem fararstjóri ásamt frumkvöðlinum Sigrúnu Lilju Guðjónsdóttur sem oftast er kennd við Gyðju Collection. „Okkur fannst London vera kjörin borg þar sem hún er mikil menningar- og viðskiptaborg. Þarna fá konur tækifæri til að víkka tengslanet sitt til muna út fyrir landsteinana og kynnast Íslendingum sem hafa náð gríðarlegum árangri erlendis,“ segir Sigrún Lilja Guðjónsdóttir. Ferðin nefnist Ný og betri – Konur til athafna og er samansett úr því besta úr námskeiðum sem Sigrún Lilja hefur haldið ásamt móður sinni, Guðrúnu Barböru. Á námskeiðunum hefur hún hvatt konur til þess að láta til sín taka og fylgja draumum sínum. Aðspurð um samstarfið við Bjargeyju Aðalsteinsdóttur segir hún að þær hafi kynnst á námskeiðinu Brautargengi hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands þegar hún var að taka sín fyrstu skref í fyrirtækjarekstri. „Bjargey hefur starfað við heilsueflingu í rúm 33 ár og hefur áralanga reynslu af Ný og betri-ferðunum svo okkur þótti tilvalið að sameina krafta okkar í þessari ferð,“ segir Sigrún Lilja og bætir við: „Farið verður yfir leiðir sem nýtast munu þátttakendum við sjálfstyrkingu, innri og ytri uppbyggingu, læsi á eigin líðan og hvernig koma má sér og sínu á framfæri.“ Skráning í ferðina fer fram á vef icelandair.is
Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Sjá meira