Börnin hrífast ósjálfrátt með Ása Ottesen skrifar 28. september 2013 10:00 Helga Rut Guðmundsdóttir tónlistarmenntunarfræðingur heldur tónlistarnámskeið fyrir börn til tveggja ára aldurs. fréttablaðið/gva „
Við sjáum að þessi námskeið hafa ótrúlega mikla þýðingu fyrir börnin sem taka þátt. Það er líklega erfitt að ímynda sér hvað átta mánaða eða jafnvel átján mánaða barn fær út úr skipulagðri tónlistarþátttöku en allir sem koma og sjá börnin í tíma hrífast ósjálfrátt með,“ segir dr. Helga Rut Guðmundsdóttir tónlistarmenntunarfræðingur, sem stendur fyrir tónlistarnámskeiðinu Tónagull sem ætlað er börnum til tveggja ára aldurs. Fyrsta tónlistarnámskeiðið var haldið í janúar 2004. „Hver tími er um 45 mínútur og er í raun byggður upp eins og tónverk með skýru upphafi og endi og tíðum kaflaskiptum þar sem skiptast á spenna og slökun. Ung börn, sem jafnvel eru ekki farin að ganga eða tala, geta í réttum aðstæðum sýnt ótrúlega þátttökufærni og gefið af sér á músíkalskan hátt. Þannig skapast oft aðstæður og samspil á meðal barnanna sem minna á tónsköpun og tónlistarspuna fullorðinna,“ segir Helga um námskeiðið. Helga hefur sérhæft sig í rannsóknum á því hvernig fólk lærir tónlist og segir að því miður sé alltof lítið vitað um ferlið sem á sér stað frá því börn fara að söngla með sjálfum sér og þar til þau eru fær um að halda lagi. „Draumur minn er að stofna íslenskt rannsóknarsetur sem sérhæfir sig í tónlistarrannsóknum á ungbörnum. Ég held að aukin þekking á því hvernig við skynjum og lærum tónlist á fyrstu mánuðunum sé lykillinn að því að skilja betur mikilvægi tónlistar fyrir manneskjuna,“ segir Helga að lokum.
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Fleiri fréttir „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Sjá meira