Gefa út Sögu um nótt Sara McMahon skrifar 25. september 2013 07:00 Eva Einarsdóttir borgarfulltrúi og Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir listakona gefa út barnabókina Saga um nótt. „
Þegar Saga, dóttir mín, var tveggja ára tók hún upp á því að verða myrkfælin. Ég ákvað að segja henni sögu til að minna hana á að myrkrið væri ekkert hættulegt. Svo eltist myrkfælnin af Sögu en mér þótti sagan falleg og skrifaði hana niður í þeim tilgangi að gefa hana út. Ég hafði samband við Lóu upp á að myndskreyta bókina en svo fæddust nokkur börn, Lóa fór í tónleikaferðalag og ég í borgarstjórn og því varð ekkert úr útgáfunni fyrr en nú,“ segir Eva Einarsdóttir, borgarfulltrúi Besta flokksins. Hún samdi barnabókina Sögu um nótt, sem gefin verður út af Bókabeitunni fyrir jól. Listakonan Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir myndskreytir bókina. Eva segir myndir Lóu vera í miklu uppáhaldi hjá sér. Því hafi legið beinast við að biðja hana um að myndskreyta bókina. „Með hennar hjálp varð litla sagan mín að glæsilegri bók,“ segir hún. Lóa hefur vakið athygli í gegnum tíðina fyrir skrítnar og skemmtilegar teikningar sínar. Hún kom meðal annars að gerð sjónvarpsþáttanna Hulla sem sýndir eru í Sjónvarpinu um þessar mundir. „Myndirnar í bókinni eru málaðar, ég var ekki með gamla tússpennann á lofti í þetta skiptið. Það var gaman að spreyta sig á því að teikna eitthvað fallegt til tilbreytingar og ekki vinna í hálfvitum eins og vanalega,“ segir hún og hlær. „Það fyndna er að þetta var alltaf mitt markmið í lífinu, ég fór í nám í Bandaríkjunum til að læra myndskreytingar, en svo endaði ég í hljómsveit.“ Lóa Hlín hefur áður gefið út bókina Alhæft um þjóðir en Saga um nótt er fyrsta bók Evu. „Þetta er mjög nýtt og spennandi fyrir mér. Myndirnar hennar Lóu eru listaverk út af fyrir sig og þetta verður því jólagjöfin í ár á mínu heimili,“ segir Eva að lokum og hlær.Mynd/Lóa HlínHér má sjá hugmynd að kápu bókarinnar.
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Sjá meira