Fjölskyldan æfir saman Sólveig Gísladóttir skrifar 24. september 2013 15:00 Maríanna og Bjarney fyrir utan íþróttahúsið í Réttarholtsskóla en þar fer námskeiðið fram. Mynd/gva
Íþróttakennararnir Bjarney og Maríanna standa á bak við Íþróttaskóla fjölskyldunnar. Þar stunda börn og fullorðnir hreyfingu saman. Þessi hugmynd kviknaði fyrir tveimur árum þegar vinkona mín, sem var með dóttur sína í íþróttaskóla, minntist á að gaman væri ef foreldrar gætu tekið þátt. Henni fannst hálfleiðinlegt að þurfa að sitja bara og horfa á,“ segir Bjarney Gunnarsdóttir, sem ásamt Maríönnu Þórðardóttur stendur fyrir námskeiði undir nafninu Íþróttaskóli fjölskyldunnar. „Það var síðan í vor sem við ákváðum að koma þessu í gang og við Maríanna höfum verið að útfæra þetta saman,“ segir Bjarney en námskeiðið hefst næsta laugardag. Bjarney og Maríanna eru báðar íþróttakennarar og hafa mikla reynslu af íþrótta- og tómstundastarfi með börnum, unglingum og fullorðnum. „Ég hef stundum séð um hópefli á fjölskyldumótum og það er afskaplega skemmtilegt þegar allir koma saman, foreldrar, börn, ömmur og afar, og hamast saman,“ segir Bjarney og hefur því fulla trú á að námskeiðið geti orðið mjög skemmtilegt, bæði fyrir börnin og þá fullorðnu. „Markmiðið er að allir fái eitthvað út úr þessu, bæði hreyfingu og skemmtun,“ upplýsir hún en meðal þess sem boðið verður upp á í íþróttaskólanum eru fjölbreyttar æfingar, hópefli, þrautabrautir, leikir, skotboltaleikir og ratleikir. Námskeiðið er ætlað börnum á aldrinum 6 til 12 ára og foreldrum eða forráðamönnum þeirra og verður haldið í íþróttahúsi Réttarholtsskóla næstu átta laugardaga frá klukkan 12 til 13. Námskeiðið kostar 8.000 krónur fyrir hverja fjölskyldu en Forvarnasjóður Reykjavíkur styrkir verkefnið, auk þess sem knattspyrnufélagið Víkingur útvegar húsnæðið. Þeir sem vilja skrá sig eða fræðast nánar um Íþróttaskóla fjölskyldunnar er bent á Facebook eða póstfangið ithrottaskolifjolskyldunnar@gmail.com.
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Sjá meira