Skoðun

Mannréttindabrot í Reykjavík

Alma Rut Lindudóttir og Þorleifur Gunnlaugsson skrifar
Frá upphafi þessa árs til loka júlí hefur körlum verið vísað frá neyðarskýli borgarinnar í 308 tilvikum. Stöðugt berast fréttir af utangarðsmönnum sem ekki hafa haft önnur úrræði en að leita í fangelsi, sofa á víðavangi eða jafnvel í ruslakompum.

Gistiskýlið að Þingholtsstræti er skýli fyrir þá sem hvergi eiga höfði sínu að halla. Þar hafa menn ekki heimilisfesti heldur fá að fleygja sér yfir nóttina þegar allt annað bregst. Til skamms tíma hefur skýlið verið opið öllum en vegna fjölgunar utangarðsfólks er nú stöðugt verið að vísa frá.



Vandi sem stigmagnast

Vandinn hefur stigmagnast og strax í fyrra var farið að vísa frá vegna plássleysis. Í janúar sl. fengu karlar ekki næturskjól í sjö skipti en í júlímánuði einum voru tilvikin orðin 87. Borgaryfirvöld hafa hunsað upplýsingar um þessa alvarlegu þróun og því má segja að flotið hafi verið vakandi að feigðarósi. Þó eru markmið borgarinnar skýr í þessum efnum og í stefnu í málefnum utangarðsfólks, sem borgarráð samþykkti í september 2008, segir:

„Markmið með stefnumótun í málefnum utangarðsfólks er að koma í veg fyrir útigang og tryggja öllum viðunandi húsaskjól.“

Þegar Heimaeyjargosið hófst tóku allir höndum saman og húsnæði fyrir „flóttafólkið“ var útvegað samstundis. Við viljum meina að hér sé samsvarandi vandi, neyðarástand. Það hefur verið ljóst í langan tíma að það vantar nýtt gistiskýli og það er með ólíkindum að borgaryfirvöld skuli hafa komið málum í slíkt óefni. Ekki hefur skort þá sem vakið hafa athygli á vandanum. Nú loksins er farið að huga að öðru úrræði en samkvæmt óljósum fyrirætlunum velferðarsviðs er ekki reiknað með nýju gistiskýli fyrr en um áramót eða seinnipartinn í vetur.

Lausn bráðavandans

Um leið og meirihluti velferðarráðs hefur hunsað allar tillögur til lausnar bráðavandans er mannréttindaráð eina stofnun borgarinnar sem tekið hefur vandann alvarlega, enda um lágmarksmannréttindi að ræða. Í borgarráði liggur nú fyrir svohljóðandi tillaga, en hún hefur legið óafgreidd í tæpa tvo mánuði:



„Mannréttindaráð hvetur í bókun sinni frá 11. júní sl. eindregið til þess að húsnæðisvandi Gistiskýlisins, sem ætlað er heimilislausum körlum í borginni, verði leystur sem allra fyrst. Þetta kemur í framhaldi af fréttum af því að stöðugt er verið að vísa heimilislausum körlum frá neyðarskýli borgarinnar. Borgarráð tekur undir bókun mannréttindaráðs og vísar því til skrifstofu eignaumsýslu og velferðarsviðs að setja málið í forgang og finna bráðabirgðahúsnæði þar til endanleg lausn verður til staðar.“

Tillagan verður vonandi tekin fyrir í borgarráði á fimmtudaginn kemur og allir þeir sem láta sig grundvallarmannréttindi varða ættu að hvetja borgarfulltrúa til að leysa vandann á einhvern hátt áður en kólnar enn frekar í veðri.




Skoðun

Sjá meira


×