Mannréttindabrot í Reykjavík Alma Rut Lindudóttir og Þorleifur Gunnlaugsson skrifar 11. september 2013 06:00 Frá upphafi þessa árs til loka júlí hefur körlum verið vísað frá neyðarskýli borgarinnar í 308 tilvikum. Stöðugt berast fréttir af utangarðsmönnum sem ekki hafa haft önnur úrræði en að leita í fangelsi, sofa á víðavangi eða jafnvel í ruslakompum. Gistiskýlið að Þingholtsstræti er skýli fyrir þá sem hvergi eiga höfði sínu að halla. Þar hafa menn ekki heimilisfesti heldur fá að fleygja sér yfir nóttina þegar allt annað bregst. Til skamms tíma hefur skýlið verið opið öllum en vegna fjölgunar utangarðsfólks er nú stöðugt verið að vísa frá.Vandi sem stigmagnast Vandinn hefur stigmagnast og strax í fyrra var farið að vísa frá vegna plássleysis. Í janúar sl. fengu karlar ekki næturskjól í sjö skipti en í júlímánuði einum voru tilvikin orðin 87. Borgaryfirvöld hafa hunsað upplýsingar um þessa alvarlegu þróun og því má segja að flotið hafi verið vakandi að feigðarósi. Þó eru markmið borgarinnar skýr í þessum efnum og í stefnu í málefnum utangarðsfólks, sem borgarráð samþykkti í september 2008, segir: „Markmið með stefnumótun í málefnum utangarðsfólks er að koma í veg fyrir útigang og tryggja öllum viðunandi húsaskjól.“ Þegar Heimaeyjargosið hófst tóku allir höndum saman og húsnæði fyrir „flóttafólkið“ var útvegað samstundis. Við viljum meina að hér sé samsvarandi vandi, neyðarástand. Það hefur verið ljóst í langan tíma að það vantar nýtt gistiskýli og það er með ólíkindum að borgaryfirvöld skuli hafa komið málum í slíkt óefni. Ekki hefur skort þá sem vakið hafa athygli á vandanum. Nú loksins er farið að huga að öðru úrræði en samkvæmt óljósum fyrirætlunum velferðarsviðs er ekki reiknað með nýju gistiskýli fyrr en um áramót eða seinnipartinn í vetur.Lausn bráðavandans Um leið og meirihluti velferðarráðs hefur hunsað allar tillögur til lausnar bráðavandans er mannréttindaráð eina stofnun borgarinnar sem tekið hefur vandann alvarlega, enda um lágmarksmannréttindi að ræða. Í borgarráði liggur nú fyrir svohljóðandi tillaga, en hún hefur legið óafgreidd í tæpa tvo mánuði: „Mannréttindaráð hvetur í bókun sinni frá 11. júní sl. eindregið til þess að húsnæðisvandi Gistiskýlisins, sem ætlað er heimilislausum körlum í borginni, verði leystur sem allra fyrst. Þetta kemur í framhaldi af fréttum af því að stöðugt er verið að vísa heimilislausum körlum frá neyðarskýli borgarinnar. Borgarráð tekur undir bókun mannréttindaráðs og vísar því til skrifstofu eignaumsýslu og velferðarsviðs að setja málið í forgang og finna bráðabirgðahúsnæði þar til endanleg lausn verður til staðar.“ Tillagan verður vonandi tekin fyrir í borgarráði á fimmtudaginn kemur og allir þeir sem láta sig grundvallarmannréttindi varða ættu að hvetja borgarfulltrúa til að leysa vandann á einhvern hátt áður en kólnar enn frekar í veðri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar