Efa vald borgarráðs í OR-máli Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 12. júlí 2013 08:00 Kjartan Magnússon borgarráðsfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
Þorleifur Gunnlaugsson, varaborgarráðsfulltrúi Vinstri Grænna Borgarráð staðfesti í gær ákvörðun stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur um að selja skuldabréf Magma í eigu fyrirtækisins þrátt fyrir harða gagnrýni minnihlutans á söluferlinu. Tilboð í bréfin, sem hljóðar upp á 8,6 milljarða króna, barst frá sjóði á vegum Landsbréfa en ekki er vitað hver stendur að baki sjóðnum. Salan var samþykkt með fjórum atkvæðum meirihlutans en þrír fulltrúar minnihlutans greiddu atkvæði á móti. Hafa þeir gagnrýnt söluferlið harðlega en af mismunandi ástæðum. Þorleifur Gunnlaugsson, varaborgarfulltrúi Vinstri grænna, gagnrýnir þá leynd sem hvílt hefur á ferlinu. Þykir honum því hafa verið haldið frá opinberri umræðu auk þess sem óljóst er hver sé raunverulegur kaupandi bréfanna. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir tímasetningu sölunnar þar sem álverð sé í lágmarki. Minnihlutinn í heild sinni efast um að það sé í samræmi við góða stjórnsýsluhætti að borgarráð taki fullnaðarákvörðun um svo stóran fjármálagerning. Í sveitarstjórnarlögum segir að eingöngu sveitarstjórn geti tekið ákvarðanir um málefni sem varða verulega fjármál sveitarfélagsins. Borgarráð hefur ákveðna heimild til afgreiðslu mála í sumarleyfi sveitarstjórnarinnar en borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins ásamt borgarráðsfulltrúum Vinstri grænna hafa leitað eftir áliti innanríkisráðuneytisins á því hvort slík heimild sé án takmarkana.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Fleiri fréttir Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Sjá meira