Óvíst hvort nýr forseti tekur við bráðlega Ólöf Skaftadóttir skrifar 8. júlí 2013 07:15 Stuðningsmenn Bræðralags múslima báðust fyrir á meðan mótmælum stóð í gær. Nordicphotos/AFP
Tugir þúsunda stuðningsmanna stríðandi fylkinga í Egyptalandi sýndu styrk sinn í fjöldagöngum á götum Kaíró í gær. Stuðningsmenn Mohammad Morsi, sem herinn steypti af stóli forseta þann 3. júlí, hafa haldið til við Rabaa al-Adawiya-moskuna undanfarna viku en gengu í gær að höfuðstöðvum hersins. Andstæðingar söfnuðust saman á Tahrir-torginu. Morsi situr í gæsluvarðhaldi og hefur Adly Mansour, yfirdómari stjórnlagadómstólsins, tekið við valdataumunum. Fréttir bárust af því fyrir helgi að til stæði að Mohammed Elbaradei, einn af leiðtogum stjórnarandstöðunnar, ætti að taka við forsetaembættinu, en þær fréttir hafa verið bornar til baka. Óvíst er hvort herinn ætli sér að skipta um forseta bráðlega. Mótmælaaldan í Egyptalandi hófst snemma árs 2011 þegar setu Hosni Mubarak á forsetastóli var mótmælt. Hann hafði verið einráður í landinu í nærri þrjá áratugi. Skömmu síðar hrökklast Mubarak frá völdum og herinn hljóp í skarðið. Í lok árs 2011 hófust þingkosningar í Egyptalandi. Fáum kom á óvart Íslamistar unnu þar glæstan sigur. Í forsetakosningunum sigraði Morsi naumlega. En herinn tók sér aukin völd á kostnað forsetans með breytingu á stjórnarskrá. Stjórnarskrárdómstóll landsins leysti upp neðri deild þingsins og herinn rýmdi þingið. Þann 30. júní 2012 tók Morsi formlega við embætti forseta. Örfáum mánuðum síðar hafði Morsi leyst helstu leiðtoga hersins frá störfum og ógilt síðustu stjórnarskrárbreytingu hersins sem kosið hafði verið um. Fjölmenn mótmæli gegn aðgerðum Morsi brutust út. Í framhaldinu varð til ný stjórnarskrá, sem samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu undir lok ársins. Þann 30. júní síðastliðinn, tóku milljónir þátt í mótmælum gegn Morsi og kröfðust afsagnar hans. Þann þriðja júlí var Morsi svo velt af stóli forseta af hernum og hann handtekinn.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Fleiri fréttir Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Sjá meira