Tveir bátar á leið til hvalveiða í Faxaflóa Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 7. júlí 2013 18:30 Rannveig segir að hrefnan hafi verið róleg að undanförnu eins og þessi mynd, sem var tekin fyrir skömmu, ber með sér.
Útlit er fyrir að tveir hrefnuveiðibátar verði í Faxaflóanum í ágúst. Undanfarin ár hefur hvalveiðibáturinn Hrafnreyður verið einn á veiðum í flóanum en nú eftir helgi mun nýr bátur hefja veiðar í flóanum. Eftir að Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, stækkaði bannsvæðið í Faxaflóa, hvarf Hrefna, félag hrefnuveiðimanna, með bát sinn norður fyrir land. En nú þegar Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, felldi ákvörðun forvera síns úr gildi huga hrefnuveiðimenn að hefja veiðar að nýju í Faxaflóanum, þó hugsanlega ekki fyrr en síðla í ágúst. Í tilkynningu sem Sigurður Ingi sendi frá sér á föstudag segir að með ákvörðun forvera síns hafi „hvorki verið horft til vísindalegra sjónarmiða né hagsmuna hrefnuveiða á svæðinu“. Enn fremur segir að um áttatíu prósent hrefnunnar hafi verið veidd á svæði sem er innan friðlínu samkvæmt ákvörðun Steingríms. „Það eru heldur engin vísindaleg rök fyrir því að minnka bannsvæðið,“ segir Rannveig Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Hvalaskoðunarfyrirtækisins Eldingar. „Þetta er bara pólitík,“ bætir hún við. Hún segir að síðustu tvo mánuði hafi hrefnan verið óvenju gæf og eins hafi sést fleiri skepnur í hverri ferð. Gunnar Bergmann Jónsson, framkvæmdastjóri Hrefnu, segir að veiðarnar fyrir norðan hafi gengið vel í ár. Þegar hafi 20 skepnur verið veiddar. Undanfarið hefur þeim verið landað á Hvammstanga og Siglufirði en þegar veitt er á Faxaflóa landar félagið í Hafnarfirði.
Tengdar fréttir Ráðherra segist fara bil beggja Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra stækkaði í dag bannsvæði hvalveiða á Faxaflóa. Forkastanleg vinnubrögð, segir þingmaður Sjálfstæðisflokks, enda sé verið að taka burt svæði þar sem áttatíu prósent hrefnunnar hafi veiðst. Ráðherrann segist hafa farið bil beggja. 21. maí 2013 19:30 Ferðaþjónustan fagnar stækkun á svæði fyrir hvalaskoðun Samtök ferðaþjónustunnar fagna ákvörðun atvinnu- og nýsköpunarráðherra að stækka það svæði sem hvalaskoðunarfyrirtækin hafa til umráða á Faxaflóa en samtökin hafa lagt mikla áherslu á að banna allar hvalveiðar í Faxaflóa og innan 30 sjómílna frá öllum hvalaskoðunarsvæðum. Þrátt fyrir að ráðherra hafi ekki orðið við þeirri ósk þá er þetta skref mikilvægt. 22. maí 2013 10:22 Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira
Ráðherra segist fara bil beggja Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra stækkaði í dag bannsvæði hvalveiða á Faxaflóa. Forkastanleg vinnubrögð, segir þingmaður Sjálfstæðisflokks, enda sé verið að taka burt svæði þar sem áttatíu prósent hrefnunnar hafi veiðst. Ráðherrann segist hafa farið bil beggja. 21. maí 2013 19:30
Ferðaþjónustan fagnar stækkun á svæði fyrir hvalaskoðun Samtök ferðaþjónustunnar fagna ákvörðun atvinnu- og nýsköpunarráðherra að stækka það svæði sem hvalaskoðunarfyrirtækin hafa til umráða á Faxaflóa en samtökin hafa lagt mikla áherslu á að banna allar hvalveiðar í Faxaflóa og innan 30 sjómílna frá öllum hvalaskoðunarsvæðum. Þrátt fyrir að ráðherra hafi ekki orðið við þeirri ósk þá er þetta skref mikilvægt. 22. maí 2013 10:22