Karzai boðar friðarviðræður við talibana Þorgils Jónsson skrifar 18. júní 2013 23:30 Anders Fogh-Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO, og Hamid Karzai, forseti Afganistans, handsöluðu í gær yfirfærslu öryggismála til afganskra öryggissveita. NordicPhotos/AFP
Stjórnvöld í Afganistan tóku í dag formlega við stjórn allra öryggismála í landinu. Þetta er ákveðinn vendipunktur í þróun mála í Afganistan þar sem fjölþjóðlegar sveitir á vegum Atlantshafsbandalagsins (NATO) hafa séð um öryggismál að meira eða minna leyti í næstum tólf ár. „Þetta er söguleg stund fyrir landið okkar,“ sagði Hamid Karzai, forseti Afganistans, við þetta tilefni. „Frá og með morgundeginum [deginum í dag] verða allar öryggisaðgerðir í höndum afganskra öryggissveita.“ Karzai lét það verða eitt sitt fyrsta verk eftir að afganskar sveitir tóku alfarið við öryggishlutverki landsins að boða til friðarviðræðna við talibana. Bandarísk stjórnvöld lýstu sig einnig reiðubúin til að taka þátt í viðræðunum og tilkynntu að talibanar hefðu þekkst boð um slíkt. Viðræðurnar munu fara fram í Katar og gætu hafist strax í þessari viku. Megináhersla verður lögð á að koma á gagnkvæmu trausti milli talibana og stjórnar Karzais. Síðustu ár hefur vægi heimamanna í vörnum gegn uppreisnaröflum, fyrst og fremst talibönum, aukist sífellt, en frá og með deginum í dag munu þeir sjá um að stýra og framkvæma allar öryggisaðgerðir í hinum 403 héruðum landsins. Áður voru 312 héruð í þeirra umsjón. Frá árinu 2009 hefur umfang öryggissveitanna, hers og lögreglu margfaldast. Frá árinu 2009 hefur fjölgað í þeirra liði úr 40.000 upp í 352.000. Það herlið sem verður áfram í landinu fram til loka næsta árs mun einungis vera til stuðnings og þjálfunar. Sem stendur eru um 100.000 erlendir hermenn í Afganistan, frá 48 löndum, langflestir frá Bandaríkjunum, um 66.000. Áætlanir gera ráð fyrir að um 50.000 verði eftir í lok þessa árs og allar erlendar hersveitir verði farnar úr landinu fyrir lok næsta árs. Þó er talið líklegt að fámennt lið, sennilega um 15.000 manns, verði áfram til ráðgjafar og þjálfunar, en það er háð samþykki þingsins í Kabúl. „Afganistan stendur ekki eitt, hvorki nú né á komandi árum,“ sagði Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO, í gær en hann hét Afgönum um leið stuðningi við uppbyggingu öryggissveitanna. Fjölþjóðlegar sveitir gerðu innrás í Afganistan haustið 2001 til að ná til hryðjuverkamannanna sem stóðu að baki árásunum hinn 11. september sama ár. Talibanar voru reknir frá völdum en síðan hafa mannskæð átök verið um allt landið og kostað þúsundir mannslífa. Um 3.300 hermenn fjölþjóðaliðsins hafa látið lífið frá því að stríðið hófst og áætlað er að um 20.000 óbreyttir borgarar hafi látist. Ofbeldisalda hefur gengið yfir landið frá ársbyrjun þar sem á fjórða þúsund óbreyttra borgara hafa látið lífið.
Mest lesið Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent Játar innbrot í búin Innlent Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Sjá meira