Upplýsingar handa öllum Óli Kristján Ármannsson skrifar 11. apríl 2013 07:00 Margrét Hauksdóttir, forstjóri Þjóðskrár, fylgist með Katrínu Júlíusdóttur, fjármála- og efnahagsráðherra, kynna nýjung í birtingu opinberra fjárhagsupplýsinga. Lengst til vinstri er Finnur Pálmi Magnússon, formaður starfshóps um opin gögn. Fréttablaðið/GVA „
Málið sem hér er á ferðinni er gríðarlega stórt, þótt það láti kannski ekki mikið yfir sér,“ segir Katrín Júlíusdóttir, fjármála- og efnahagsráðherra. Hún, ásamt Finni Pálma Magnússyni, formanni starfshóps um opin gögn og birtingu fjárhagsupplýsinga ríkisins, kynnti í gær á blaðamannafundi fyrstu skrefin í átt að því að gera upplýsingar úr bókhaldi ríkisins aðgengilegar almenningi. Tekin hefur verði ákvörðun um að gögn frá Fjársýslu ríkisins sem fram til þess hafa komið fyrir sjónir fárra verði hér eftir birt og uppfærð á nýju vefsvæði sem nota á til framtíðar fyrir opin gögn hins opinbera, gogn.island.is. Katrín segir markmið verkefnisins að stuðla að greiðum aðgangi almennings að fjárhagsupplýsingum ríkisins. „Gegnsæi er lykilatriði í þessari vinnu og samfara því aukið aðhald og traust í samfélaginu,“ segir hún. Málið sé eitt af hennar uppáhaldsviðfangsefnum í ráðuneytinu. „Mér finnst þessar upplýsingar þess eðlis að þær eigi að vera öllum aðgengilegar, þannig að fjölmiðlar og aðrir sem oft hafa hringt í ráðuneyti í leit að upplýsingum um einstaka liði fjárlaga eða í rekstri hins opinbera geti séð þetta sjálfir og sett fram á þann máta sem þeir telja bestan.“ Gögnin sem nú hafa verið birt varða árshluta- og mánaðaruppgjör ríkissjóðs og eru ítarlegri og aðgengilegri en hingað til. Þær geta nýst almenningi, fyrirtækjum í upplýsingatækni og fjölmiðlum. Í gær var um leið birt skýrsla starfshóps forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra, sem unnið hefur að því undanfarna mánuði að birta með aðgengilegum hætti fjárhagsupplýsingar ríkisins. Í skýrslu starfshópsins eru meðal annars lögð til næstu skref í birtingu fjárhagsupplýsinga og kynntir leyfisskilmálar fyrir gögnin sem eru að breskri fyrirmynd. Samkvæmt skilmálunum má hver sem er nota gögnin eins og honum sýnist. Katrín segir að í framhaldinu bætist við gögnin á vefnum, bæði frá öðrum stofnunum ríkisins og eins frá sveitarfélögum. Hún ætli að leggja sig fram um að tryggja að verkefnið haldi áfram eftir kosningar og því kunni að vera ráðlegt að láta starfshópinn starfa áfram inn í næsta kjörtímabil.
Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Fleiri fréttir Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Sjá meira