Innlent

Áfram samdráttur í ESB

Mestur þróttur innan ESB var í hagkerfum Eystrasaltsríkjanna undir lok síðasta árs.
Mestur þróttur innan ESB var í hagkerfum Eystrasaltsríkjanna undir lok síðasta árs. Mynd/Getty
Efnahagsmál Hagkerfi Evrópusambandsins skrapp saman um 0,5% á síðasta fjórðungi síðasta árs. Þar með var samdráttur á svæðinu samanlagt 0,3% á árinu.

 

Þróunin var enn neikvæðari í ríkjum evrusvæðisins, þar sem samdrátturinn var 0,6% bæði á fjórða ársfjórðungi og yfir allt árið. Aðild að evrunni eiga sautján af 27 ríkjum ESB.

Sé litið á einstök ríki var fjórði ársfjórðungur 2012 verstur í Portúgal, þar sem mældist 1,8% samdráttur. Þá skruppu hagkerfi Kýpur og Slóveníu saman um 1%. Í Eystrasaltslöndunum mældist aftur á móti nokkur hagvöxtur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×