Tilskipunin enn þá í gildi í ESB Þorgils Jónsson skrifar 29. janúar 2013 06:00 Talsmaður Michel Barnier, framkvæmdastjóra málefna innri markaðar ESB, segir að tilskipun um innstæðutryggingar sé enn í fullu gildi í ESB-ríkjum þrátt fyrir úrskurðinn í Icesave-málinu. Fréttablaðið/ap
Framkvæmdastjórn málefna innri markaðar hjá ESB telur tilskipun sambandsins um innstæðutryggingar í fullu gildi gagnvart aðildarríkjum ESB, þrátt fyrir Icesave-dóminn. Þetta segir í tilkynningu frá talsmanni Michel Barnier framkvæmdastjóra. Málið var af mörgum álitið prófsteinn á innistæðutryggingakerfi ESB. De Rynck segir að einhvern tíma gæti tekið að meta heildaráhrif dómsins, en í rökum sínum með umsókn um að fá meðalgöngu í málinu bar framkvæmdastjórnin við mikilvægi málsins til að viðhalda trausti á innstæðutryggingakerfinu. „Framkvæmdastjórnin stendur við túlkun sína á núverandi innstæðutryggingakerfi innan ESB. Innstæðutryggingar hjá hinum 27 aðildarríkjum eiga einnig við ef kerfishrun á sér stað," segir hann. Aðildarríkin eru, samkvæmt skilningi framkvæmdastjórnarinnar, því bundin því að tryggja innstæður allt að 100.000 evrum. Nú stendur yfir endurskoðun til eflingar innstæðutryggingakerfinu. Þá fagnar framkvæmdastjórnin þeirri yfirlýsingu íslenskra stjórnvalda að greiðslur úr þrotabúi Landsbanka til kröfuhafa muni halda áfram „og að Icesave-kröfurnar verði að fullu greiddar af hinum raunverulega skuldara, þrotabúi Landsbankans".
Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira