Á að móta áætlun um aukna hagsæld 26. janúar 2013 07:00 Mckinsey Samráðsvettvangurinn er afleiðing viðræðna stjórnmálaleiðtoga landsins sem hófust eftir að McKinsey & Company birti skýrslu sína um leið Íslands til aukins hagvaxtar í október 2012. fréttablaðið/gva
Samráðsvettvangur um aukna hagsæld á Íslandi hefur verið settur á fót. Á honum munu formenn stjórnmálaflokka, aðila vinnumarkaðarins, forstjórar níu stórra íslenskra fyrirtækja og fulltrúar háskólasamfélagsins og stjórnsýslunnar eiga sæti. Formaður þessa 26 manna hóps verður Ragna Árnadóttir. Hópurinn mun funda fjórum sinnum á árinu og er gert að móta heildstætt og óháð yfirlit yfir aðgerðir sem geta stuðlað að langtímahagvexti og efnahagslegum stöðugleika. Fyrsti fundurinn verður 11. febrúar og stefnt er að því að niðurstaða hópsins liggi fyrir í september. Samhliða mun sjálfstæð verkefnastjórn, sem stýrt verður af Friðriki Má Baldurssyni prófessor, vinna að mótun tillagna sem eiga að geta stuðlað að sömu markmiðum. Viðfangsefnum hennar verður skipt í fimm málaflokka: þjóðhagslegt umhverfi, innlenda þjónustugeirann, alþjóðageirann, auðlindageirann og opinbera geirann. Fjórir til fimm vinna að hverjum málaflokki. Það fólk mun meðal annars koma úr greiningardeildum banka, stjórnsýslunni og háskólasamfélaginu. Stofnun samráðsvettvangsins má rekja til þess þegar ráðgjafafyrirtækið McKinsey & Company kynnti skýrslu um leið Íslands til aukins hagvaxtar í lok október síðastliðins. Skýrslan var unnin að frumkvæði fyrirtækisins og endurspeglaði því óháð mat þess. Í henni var íslenskt efnahagslíf greint, hvar möguleikar þess til framþróunar lægju og til hvaða aðgerða þyrfti að grípa svo að auka mætti velsæld á Íslandi. Í kjölfar birtingar skýrslunnar áttu sér stað óformlegar viðræður á milli stjórnmálaleiðtoga um myndun samráðsvettvangs. Þær skiluðu því að hafist var handa við að móta samráðsvettvanginn í forsætisráðuneytinu að beiðni Jóhönnu Sigurðardóttur. thordur@frettabladid.is
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Fleiri fréttir Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Sjá meira