Lífið

Hryllingsmyndahátíð um Evrópu á hjólum

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Sigurður Kjartan fór ásamt félögum sínum til Barselóna þar sem þeir sýndu í síðustu viku Harmsögu eftir Valdimar Jóhannsson og La Cara Oculta eftir hinn kólumbíska Andi Baiz í gömlu vöruhúsi þar í borg.
Sigurður Kjartan fór ásamt félögum sínum til Barselóna þar sem þeir sýndu í síðustu viku Harmsögu eftir Valdimar Jóhannsson og La Cara Oculta eftir hinn kólumbíska Andi Baiz í gömlu vöruhúsi þar í borg. Mynd/úr einkasafn
„Þetta er hugmynd sem ég fékk þegar ég var að vinna með Garðari Stefánssyni á RIFF fyrir nokkrum árum. Hugmyndin var upprunalega að setja upp hryllingsmyndir í kirkjum. Þegar engin af kirkjunum á Íslandi var til í dans vatt hugmyndin einhvern veginn upp á sig, hópurinn stækkaði og konseptið víkkaði,“ segir Sigurður Kjartan Kristinsson kvikmyndagerðarmaður.

Hann er einn hugmyndasmiðanna að baki hryllingsmyndahátíðar á hjólum sem nefnist Horror Bohemia. Sigurður bætir við að hugmyndin hafi verið lengi í farvatninu.

„Maður verður bara að vera þolinmóður og leyfa hlutunum að þroskast í svona framkvæmdum,“ segir Sigurður.

Ásamt honum koma að hátíðinni Sara Nassim Valadbeygi og Gunnar Atli Thoroddsen kvikmyndagerðarmenn, Róbert Garcia tökustaðastjóri, Gulli Már ljósmyndari og John Ingi Matta hljóðmaður.

„Þannig að hugmyndin varð að því að setja upp hrylling, eða eitthvað ógnvekjandi, á stöðum sem hafa verið yfirgefnir; í fangelsum, geðspítölum eða kirkjum,“ segir Sigurður.

Ætlunin var fyrst að hafa hátíðina á Íslandi og í Frakklandi.

„Við fengum styrk fyrir því frá EUF og það er í raun túrinn sem við erum að fara núna, með Barselóna sem smá viðbót,“ segir Sigurður.

Í síðustu viku sýndu þeir tvær hryllingsmyndir, Harmsögu eftir Valdimar Jóhannsson og La Cara Oculta eftir hinn kólumbíska Andi Baiz, í gömlu vöruhúsi í Barselóna.

„Á sama tíma erum við í tökustaðaleit og að byggja upp tökustaðatengsl fyrir stærri hugmynd um Horror Bohemia-túrinn. Þar viljum við hafa fimmtán manna tökulið sem fer á túr, eins og hljómsveitir gera, og setur upp kvikmyndasýningu á hverjum yfirgefnum stað og á eftir fylgir tryllt partý,“ heldur Sigurður áfram.

„Þá yrðu þetta þrír leikstjórar, mögulega einhverjir tónlistarmenn og starfsfólk sem fara á túr í tvær vikur, halda þessa kvikmyndahátíð á hjólum og við tökum upp heimildarmynd í leiðinni,“ segir Sigurður.

„Hugmyndin er að gera þessa kvikmyndahátíð ólíka öðrum að því leytinu til að það á að vera upplifun að mæta á sýningar á óhefðbundnum stöðum sem eru þrungnir af sögu og gömlum minningum,“ segir Sigurður að lokum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.